Ragnar �?skarsso: �?ú ert alltaf svo
Um daginn lendi ég á spjalli við góðan vin minn sem er sjálfstæðismaður fram í fingurgóma. Við ræddum eins og venjulega um allt milli himins og jarðar. �?ar koma að því að hann lýsti yfir mikilli hneykslan sinni á ófremdarástandinu í samgöngumálum okkar Vestmannaeyinga. �?essir höfðingjar hjá Vegagerðinni, Eimskip og Siglingastofnun væru fyrir vikið óalandi og óferjandi enda væru þeir að stöðva alla framþróun í samgöngumálum okkar.
�?g gat vel og að fullum hug tekið undir með honum með ófremdarástandið en ég sagðist líta svolítið öðrum augum á við hverja væri að sakast í þessum efnum.
�?g benti honum á að samgönguráðherra væri yfirmaður allra samgöngumála í landinu og hann væri því sá sem allt stæði og félli með. Ef samgönguráðherra vildi gæti hann skipað bæði Vegagerðinni og Siglingastofnum fyrir verkum. �?ví stæði þetta allt með því að ráðherrann og flokkur hans hefðu vilja og kjark til að bæta úr málum. �?á benti ég vini mínum á að Sjálfstæðisflokkurinn hefði á mörgum undanförum árum farið með fjárveitinga- og samgöngumál í landinu og auk þess væru flokkssystkini ráðherrans við völd í Vestmannaeyjum. Hér væri því varla hægt að hugsa sér betri aðstæður en að ráðast í úrbætur á samgöngumálum okkar, Sjálfstæðismenn á öllum vígstöðvum! Flokkurinn hefði hins vegar ekkert sinnt þessu brýna verkefni og því er staðan eins og hún er. �?ar lægi því sökin ef saka ætti einhvern um ófremdarástandið.
�??Raggi, þú ert alltaf svo pólitískur,�?? sagði þessi vinur minn og þurfti nauðsynlega að fara annað.
Áður en hann fór náði ég hins vegar að segja honum að ég væri til í að taka svona umræðu um heilbrigðismálin líka. �?ar væri líka auðvelt að finna vafasöm spor Sjálfstæðisflokksins.
Ragnar �?skarsson

Nýjustu fréttir

Sigurjón bjargaði fjórum áhöfnum
Leik ÍBV og FH í Bestu deildinni flýtt
Matthías Harðarson með tónleika í Hallgrímskirkju
Tæplega níræður Eyjamaður með 13 rétta
Samið við Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar
Gul viðvörun: Suðaustan hríð
Drífum í þessu svo við þurfum ekki að borga!
Stór viðbygging við Íþróttamiðstöðina í útboð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.