Ragnar �?skarsson: Góði gírinn
Fyrir nokkrum dögum sagði ég ykkur frá vini mínum og miklum Sjálfstæðismanni sem ræddi við mig um samgöngumál okkar Eyjamanna. Hann hringdi í mig í gær og sagðist vera að mörgu leyti sammála mér um ábyrgð ráðherra á þeim málefnum sem undir þá heyrðu. Hann yrði líkast til bara að viðurkenna að Sjálfstæðismenn, bæði hér heima og á Alþingi hefðu staðið sig illa í þessu mikilvæga hagsmunamáli. �??En þú verður að viðurkenna eitt, Raggi minn,�?? sagði hann. �??Ríkisstjórn Bjarna Ben hefur heldur betur aukið framlög til heilbrigðismála undanfarin ár. �?g sá það svart á hvítu í gögnum uppi í Ásgarði. Gögnin sýna að í heilbrigðismálum standa mínir menn sig sko og ætla að halda því áfram. Allt er því í góðum gír.�?? Eftir þessa yfirlýsingu var ekki laust við að vinur minn fyndi til óblendins stolts yfir �??sínu fólki.�??
�??Ja, þú segir nokkuð,�?? sagði ég.
�??Ef þeir eru að standa sig svona vel, hvers vegna er þá stöðugur niðurskurður og samdráttur við sjúkrahússins okkar. Hvers vegna geta barnshafandi konur ekki fætt börn sín í Eyjum? Hvers vegna er nánast engar aðgerðir hægt að gera hér heima? Hvers vegna er geð- og sálfræðiþjónusta ófullnægjandi? Hvers vegna er augnlæknir hættur að koma hingað? Hvers vegna þurfa þeir sem vegna ástandsins verða aða fara til Reykjavíkur til að fá þjónustu að standa undir óheyrilegum kostnaði vegna ófremdarástandsins í heilbrigðismálum okkar Eyjamanna. Hvers vegna eru aðstæður orðnar svo óboðlegar að fólk er farið í verulegum mæli að hugsa sér til hreyfings héðan?
�?g held að þú verðir að skoða þessi gögn upp í Ásgarði betur. Kannski vilja þeir sem segjast sýna með gögnunum hvernig Sjálfstæðismenn standa sig í heilbrigðismálum okkar Eyjamanna, birta þau almenningi. �?g er reyndar viss um að í það leggja þeir ekki, alla vega ekki fyrir kosningar. �?að getur nefnilega enginn breytt klessuverki í glansmynd.
Ragnar �?skarsson

Nýjustu fréttir

Sigurjón bjargaði fjórum áhöfnum
Leik ÍBV og FH í Bestu deildinni flýtt
Matthías Harðarson með tónleika í Hallgrímskirkju
Tæplega níræður Eyjamaður með 13 rétta
Samið við Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar
Gul viðvörun: Suðaustan hríð
Drífum í þessu svo við þurfum ekki að borga!
Stór viðbygging við Íþróttamiðstöðina í útboð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.