Páll Magnússon: Kosið um festu og stöðugleika
�?að er ekki nema ár síðan við stóðum í nákvæmlega sömu sporum og nú: Alþingiskosningar framundan.
Er þetta ekki allt í lagi – er bara ekki í góðu lagi að kjósa einu sinni á ári?
Nei, það er ekki í lagi! �?essi óstöðugleiki í stjórnmálunum; þetta eilífa rót og tætingur er stærsta ógnin við þann efnahagslega stöðugleika sem við sækjumst svo mikið eftir – og stefnir í voða öllum þeim mikla árangri sem við höfum náð á síðustu árum.
�?að er lífsnauðsyn fyrir atvinnulífið í landinu að fá nú meiri festu og fyrirsjáanleika í umhverfi sitt. Fyrirtækin þurfa að geta gert langtímaáætlanir um rekstur og fjárfestingar. Og þetta er ekki bara mikilvægt fyrir fyrirtækin sjálf – heldur ekki síður fyrir fólkið sem vinnur hjá þeim.
Sjávarútvegurinn þarf að vita við hverskonar gjaldtöku hann á að búa næstu árin og helst áratugi.
Bændur þurfa að vita hvernig rekstrarumhverfi þeirra verður einhver ár fram í tímann; hvað þeir eiga að framleiða og hversu mikið.
Ferðaþjónustan þarf að vita með löngum fyrirvara í hvaða skattaumhverfi hún á að starfa.
Allur sá árangur sem við höfum náð í efnahagsmálum er í uppnámi ef nýir pólitískir lukkuriddarar komast til valda á nokkurra mánaða fresti – með nýja stefnu, nýja skatta og nýjar endurskoðunarnefndir. Halda svo fund eina kvöldstund – slíta ríkisstjórn – fara í kosningar og deyja. Næsti – gjörið svo vel! Og svo koll af kolli. �?etta býður heim svo mikilli óvissu og óstöðugleika í stjórnarfarinu að ekki verður við unað fyrir fólkið í landinu.
Kosningarnar núna snúast um festu og stöðugleika. Að komast út úr þessum vítahring. Ekki síst fyrir okkar kjördæmi, Suðurkjördæmi, sem á svo mikið undir þessum grunnatvinnuvegum komið. �?egar litið er yfir hið pólitíska landslag eins og það blasir við í dag, með klofningi og upplausn, má segja að eina haldfesta landsbyggðarinnar sé í Sjálfstæðisflokknum.
Við þurfum festu og stöðugleika.
Við þurfum sterkan Sjálfstæðisflokk.

Nýjustu fréttir

Baldur verður áfram í Eyjum
Eyjakonur í undanúrslit eftir framlengdan leik gegn FH
Hátíðarhöld 17. júní færð inn í Íþróttamiðstöðina
Sjómannsfjölskyldan mín
Topplið FH mætir ÍBV í bikarslag á Hásteinsvelli
Vertíðin 2026
Skoðar Vestmannaeyjar fyrir mögulega fóðurverksmiðju
Herjólfur III bíður enn eftir haffærisskírteini
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.