Vilhjálmur Árnason: Heilbrigðisþjónusta heima í héraði
Vilhjálmur Árnason, alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Suðurkjördæmi.
Fyrir rúmu ári síðan hófum við umræðu um að bæta við sérhæfðri sjúkraþyrlu inn í utanspítalaþjónustuna hér á Suðvesturhorni landsins. Slík þyrla yrði mönnuð bráðalækni og bráðatækni sem hefðu til taks öll þau tæki og búnað sem þarf til að veita bráðaþjónustu strax á vettvangi. Með þessu móti verður hægt að færa sérhæfða læknisþjónustu, utanspítalaþjónustu, út til fólksins á vettvangi til að draga verulega úr afleiðingum veikinda og slysa.
�?essi þjónusta yrði hrein viðbót við þær öflugu bjargir sem við höfum í dag sem sjúkrabílarnir og björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar eru. Sjúkraþyrla myndi bæði draga úr álagi á þá aðila og veita þeim mikinn faglegan stuðning.
Á þessu eina ári hefur Fagráð sjúkraflutninga Íslands skilað af sér ítarlegri skýrslu þar sem það leggur til að hafið verði sérstakt prufuverkefni með sjúkraþyrlu strax næsta vor. Fjölmargir aðrir fagaðilar eins og félag bráðalækna og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hafa tekið undir með fagráðinu. �?á hafa Samtök sveitarfélaga á Suðurlandi einnig gefið út samantekt um nauðsyn þess að tekin verði upp þjónusta sjúkraþyrlu á Suðurlandi.
Málið hefur verið kynnt fyrir ráðherrum ríkisstjórnarinnar við góðar undirtektir. Næsta skref er því hjá þeim sem mun taka við heilbrigðisráðuneytinu í nýrri ríkisstjórn að taka ákvörðun um að setja verkefnið af stað.
�?etta er einn af stóru þáttunum í að efla heilbrigðisþjónustuna á landsbyggðinni ásamt eflingu heilsugæslunnar, fjarheilbrigðisþjónustu og uppbyggingu hjúkrunarheimila.
Við þingmenn Sjálfstæðisflokksins munum leggja okkur áfram fram við að koma þessu verkefni í höfn til að allir eigi jafnt og gott aðgengi að sem bestri heilbrigðisþjónustu.
Komum sjúkraþyrlunni á loft með því að setja X við D þann 28. október.

Nýjustu fréttir

Gul viðvörun: Suðaustan hríð
Drífum í þessu svo við þurfum ekki að borga!
Stór viðbygging við Íþróttamiðstöðina í útboð
Páskafundur í safnaðarheimili Landakirkju
ÍBV semur við leikmann frá Portúgal
Tengdadæturnar  Sigurlaug, Emma og Inga létu til sín taka
Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar
Framleging á flugi samþykkt fram í miðjan apríl
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.