Við Gunnar Marel vorum klárir í bátana í síðstu viku, komum og fórum fljúgandi, þökk sé dúndurflugmönnum Arna, eftir mjög góða tveggja daga heimsókn og ánægjulegar viðtökur. Við blasir að margt gengur vel í Eyjum en samt kalla sömu brýnu verkefnin á lausnir og síðast, enn eitt kjörtímabilið: Kunnugleg málefni, allt frá samgöngumálum og heilbrigðisþjónustu til skóla- og velferðarmála þar sem almannatryggingar og kjaramál aldraðra og öryrkja ber hátt. Stefnumál stjórnarflokkanna og þingmanna þeirra hafa lítt verið efnd og lofuð samvinna ekki orðið að veruleika af hálfu stjórnvalda. Stöðnun eða niðurskurður einkennir fyrirætlanir í ríkisfjármálum í þeim málaflokkum sem mest er horft til. Nú sýna allir stjórnmálaflokkar skilning líkt og áður en ávallt er spurning um hver framkvæmir með styrk og trausti sem til þarf.
Tími er til kominn að skipta um forystu í landsmálunum, vissulega í samsteypustjórn, en með félagslegar áherslur í fyrirrúmi. Efna hægt og bítandi til umbótanna, forgangsraða þeim og koma á þeirri samvinnu sem nauðsynleg er til að verkin gangi upp. Gunnar Marel og ég heyrðum margar skoðanir í þessa veru og lítum á kosningarnar sem sjaldfengið tækifæri til vinstri stjórnar í töluverðu góðæri, í stað neyðarviðgerða eftir hrunið.
Vinstri græn leggja áherslu á margar leiðir til að afla lágmarksupphæðar í brýnustu lagfæringar á helstu sviðum en hlífa um leið nær öllum tekjuhópum við skattaálögum. Við skulum íhuga saman hvort efnuðustu 10% landsmanna (sem eiga 2/3 hluta allra eigna), hópurinn í 10. tekjuflokki Hagstofunnar (með yfir 330 milljarða árstekjur) og 1-2% fjármagnstekjueigenda (sem eiga upp undir 50% fjármagnstekna eða yfir 50 milljarða) teljist aflögufær. Til viðbótar mætti horfa til hærri arðgreiðslna úr bönkum sem ríkið ræður yfir, til hluta af 43 milljarða afgangi í fjárlagafrumvarpinu og til auðlindagjalda stórra fyrirtækja með þéttan hagnað, svo sumt sé nefnt. �?g hvet alla til að mæta á kjörstað.
Ari Trausti Guðmundsson
oddviti lista VG í Suðurkjördæmi