Elliði Vignisson: Breytingar gerðar á Landeyjahöfn
Fátt, ef eitthvað er meira rætt í Vestmannaeyjum en samgöngur. �?ví miður hafa bábiljur og bullsögur verið hvimleiður fylgifiskur þessara umræðna. Enn eru þeir til sem telja að hin nýja ferja geti ekki siglt í �?orlákshöfn, að ekkert verði gert hvað varðar breytingar á Landeyjahöfn og jafnvel að ný ferja sé hreint ekkert í smíðum. Líklegt er að upplýsingaflæði í þessu mikilvæga máli hafi ekki verið nægilegt og því bálbiljunar fengið að lifa. Í þessum stutta pistli langar mig að gera grein fyrir því hver staðan er núna og hvað breytingar verið er að vinna að á Landeyjahöfn.
Dýpið í Landeyjahöfn var mælt á miðvikudaginn innanhafnar og á fimmtudaginn milli garða og utan hafnar. Niðurstaðan gefur fyrirheit um að hægt verði að sigla áfram í Landeyjahöfn eitthvað áfram fram eftir vetri, þó með þeim fyrirvara alda verði ekki há enda ræður núverandi Herjólfur ekki við að sigla í Landeyjahöfn þegar alda fer yfir 2,5 metra
Vel hefur gengið að dýpka
Í haust hafa hingað til komið tvö óveðursskot úr suðaustri sem hafa skilað miklu efni inn í höfnina en sem betur fer hefur gengið tiltölulega greiðlega að dýpka hana. �?etta er meira en oft áður en ekki óþekkt þar sem höfnin fyllist hratt af sandi á haustin þegar lægðir koma úr suðaustri. �?eir sem að dýpkun standa telja einnig að aurrennsli úr Markarfljóti hafa verið mikið undanfarið vegna rigninga sem veldur því að fínna efni er í kringum höfnina en vanalega. Eftir því sem efnið er fínna á aldan auðveldara með að hreyfa það.

Smíðatíminn verður nýttur til að gera breytingar
Í samræmi við vilja heimamanna og ályktanir bæjarstjórnar verður smíðatími nýrrar Vestmannaeyjaferju nýttur til að gera breytingar á höfninni. Höfuðáhersla er lögð á að tryggja skipinu nægt dýpi og gera aðrar þær breytingar strax sem mögulegt er en halda áfram að rannsaka og finna lausnir á öðrum þáttum.
i. Fokgirðing
Foksandur hefur gjarnan valdið miklum vanda. �?ar er um að ræða afar fínt efni sem fýkur eftir suðurströndinni og sest sérstaklega fyrir í innrihöfninni. Erfitt er að komast að þessu efni til að fjarlægja það. Bæði veldur að erfitt er að koma dýpkunarröri dýpkunarskipa að því svo nærri viðlegukannti auk þess sem dæling á svo fínu efni er erfið. Til að draga úr þessum vanda var í vor rekið niður stálþil sem �?�fokgirðing�?� til að draga úr fokasandi inn í höfnina.
ii. Breyting á viðlegukannti og innrigörðum
�?kyrð innan hafnar hefur valdið nokkrum vanda seinustu ár. Hreyfinign hefur ma. brotið �?�rampinn�?� og orðið til að auka enn á frátafirí siglingum. �?ess vegna hefur seinustu misserin verið unnið að stækkun innrihafnarinnar auk þess sem búið er að loka gafli bryggjunnar til að draga úr ölduhreyfinu við hana.
iii. Breyting á ytrigörðum
Í vetur hefur verið unnið við hönnun á breytingum á hafnarmynninu en það er sá staður í höfninni sem er viðkvæmastur fyrir sandburði. Nú er stefnt að því að gera breytingar á opi hafnarinnar með grjóttum og bæta aðkomu að garðsendum með vegi og plani á garðsendum þannig að unnt verði að keyra krana út á enda og dýpka svo frá þeim. Með þessum breytingum er gert ráð fyrir að unnt verði að dýpka í verri veðrum en nú er og að bæta fleiri valkostum við dýpkunaraðferðir í stað þess að vera algjörlega háð dýpkunarskipi. Með þessum aðgerðum er stefnt að því að tryggja nægjanlegt dýpi í hafnarmynninu fyrir hina nýju ferju sem er til muna grunnristari. Eins og allir þekkja hefur dýpið verið einn af aðal flöskuhálsunum við nýtingu Landeyjahafnar frá því að hún opnaði 2010.
Gert er ráð fyrir að breytingar á hafnarmynninu fari í útboð upp úr áramótum og verði unnið að mestu næsta sumar en að fullu lokið sumarið 2019. Áður en þetta verður boðið út verður fenginn erlendur sérfræðingur til að meta tillöguna og betrumbæta hana.
iv. Dýpkun úr landi
Búið er að bjóða út sanddælur sem ætlunin er að nýta við uppdælingu á sandi frá garðsendum. Krani (mobile krani) verður keyrður út á garðsenda þegar veður leyfir. Sanddæla verður hengd í kranann og sandi dælt upp á land og hann svo losaður út í straum hundruðum metra austan við höfnina. Standa vonir til að dælurnar komi í byrjun næsta árs og verði nýttar í vor til að flýta fyrir opnun hafnarinnar. Með þessum búnaði á að vera hægt að dæla upp og flytja í burtu 1000 rúmmetra af efni á klukkustundu og geta verið í gangi allan sólarhringinn, þegar á þarf að halda. Rör þurfa að geta flutt efnið 2,5 kílómetra í burtu. Dælurnar eiga að geta starfað við mun verri veðurskilyrði en dýpkunaskipin sem notuð hafa verið, eða allt að 3 metra ölduhæð.
v. Skjól fyrir skipið í aðsiglingu
�?á hefur Vegagerðin ítrekað að stefnt sé að áframhaldandi rannsóknum á mögulegum görðum fyrir utan höfnina eða einhverjum þeim aðgerðum sem veitt geta skipinu skjól í aðsiglingu að höfninni. �?ví miður hefur enn ekki tekist að finnan verkfræðilega lausn hvað það varðar en öllum er ljóst að hrygg þarf að setja í vinnu þar að lútandi.
Samstaða skilar meiru en sundrung
Landeyjahöfn er okkar nánasta framtíð hvað samgöngur varðar. �?að verkefni að gera þær öruggar og góðar er risavaxið. Eins og kemur fram hér að ofan þá er verið að vinna markvissum skrefum að því að gera þær breytingar sem mögulegar eru. Auðvitað hefði maður viljað að skreifn hefðu verið stærri og þau tekin fyrr. �?etta er hinsvegar staðan og út frá henni verðum við að vinna. Sameinumst því um að tryggja að staðan verði á öllum stundum eins og góða og mögulegt er.
Sundrung, deilur og tortryggni hafa aldrei skilað árangri.

Nýjustu fréttir

Stór viðbygging við Íþróttamiðstöðina í útboð
Páskafundur í safnaðarheimili Landakirkju
ÍBV semur við leikmann frá Portúgal
Tengdadæturnar  Sigurlaug, Emma og Inga létu til sín taka
Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar
Framleging á flugi samþykkt fram í miðjan apríl
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.