Áhersluverkefni eru hluti af byggðaáætlun fyrir Suðurland
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) kalla eftir tillögum að aðgerðum í byggðamálum frá almenningi, samtökum, fyrirtækjum og stofnunum á Suðurlandi. Áhersluverkefni eru þróunarverkefni sem unnin eru af SASS til að uppfylla markmið og megináherslur Sóknaráætlunar Suðurlands, sem er sértæk byggðaáætlun fyrir landshlutann og hluti af byggðaáætlun fyrir landið allt.
Menningarmál eru líka byggðamál
Helstu málefnasvið Sóknaráætlunar Suðurlands eru atvinnumál, nýsköpun og mennta- og menningarmál. Sem dæmi, þá geta áhersluverkefni verið stærri menningarverkefni, samstarfsverkefni fyrirtækja og/eða atvinnulífs, þróunarverkefni á sviði menntamála eða verkefni til eflingar nýsköpunar innan atvinnugreina eða á sviði menntamála. Verkefnin þurfa að vera í samræmi við markmið landshlutans á viðkomandi málefnasviði Hægt er að kynna sér markmiðin á heimasíðu SASS, www.sass.is
Fjölbreytt áhersluverkefni 2017
Til að gefa nánari innsýn í eðli áhersluverkefna kann að vera fróðlegt að skoða heiti áhersluverkefna yfirstandandi árs:
Brotthvarf úr framhaldsskólum Málþing um framtíð iðn-, tækni- og verknáms
FabLab verkstæði Menningarkort
Félagsleg þolmörk gagnvart ferðamönnum Ráðstefna um sjálfbært Suðurland
Innviðagreining Sjúkraþyrlur
Íbúakönnun Skaftárhreppur til framtíðar
Kortavefur Suðurlands Stofnun Ungmennaráðs
Kortlagning umhverfismála Hönnun á fræðsluefni fyrir söfn og sýningar
Hægt er að kynna sér betur þessi verkefni, sem og áhersluverkefni fyrri ára, á heimasíðu SASS.
Hægt að senda inn tillögur á vef SASS
Allir geta sent inn tillögur eða hugmyndir að verkefnum í gegnum vef samtakanna á slóðinni; sass.is/ahersluverkefni. �?ar er einnig hægt er að kynna sér markmiðin sem koma fram í stefnumörkun Suðurlands sem áhersluverkefnum er ætlað að vinna að. Tillögur að áhersluverkefnum sem unnin verða 2018 þurfa að berast fyrir 21. nóvember næstkomandi.
Einnig er hægt að setja sig í samband beint við undirritaðan (thordur@sass.is) eða Hrafn Sævaldsson nýsköpunar- og þróunarstjóra �?ekkingarseturs Vestmannaeyja (hrafn@setur.is) sem veita nánari upplýsingar og geta aðstoðað við mótun tillagna. Nánari upplýsingar um aðra ráðgjafa og verkefnastjóra á vegum SASS er að finna á heimasíðu SASS.
�?órður Freyr Sigurðsson
Sviðsstjóri þróunarsviðs Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga

Nýjustu fréttir

Stór viðbygging við Íþróttamiðstöðina í útboð
Páskafundur í safnaðarheimili Landakirkju
ÍBV semur við leikmann frá Portúgal
Tengdadæturnar  Sigurlaug, Emma og Inga létu til sín taka
Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar
Framleging á flugi samþykkt fram í miðjan apríl
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.