Refurinn, Fjallvegahlaup og Ljóðsafn Tómasar
Í fyrra var ákveðið að feta þá leið við bókakynningar í Safnahúsi um Safnahelgi að velja jafnan eitt öflugt bókaforlag sem væri að gefa út fjölbreyttan bókakost þannig að sem flestir finndu nokkuð við sitt hæfi. Að þessu fáum við í heimsókn Sölku sem er í eigu og rekstri ungra og metnaðargjarnra kvenna. Dögg Hjaltalín, annar eigandi Sölku, mun kynna bókaforlagið og taka með sér höfundana Sólveigu Pálsdóttur, Stefán Gíslason og Sölva Björn Sigurðsson. Kynningin og upplesturinn verður í Safnahúsi frá klukkan eitt til þrjú á laugardaginn.
Refurinn �?? Sólveig Pálsdóttir
Guðgeir starfar tímabundið sem öryggisvörður á Höfn í Hornafirði á meðan hann jafnar sig á áföllum í starfi og einkalífi. Líf hans hefur tekið algjörum stakkaskiptum á stuttum tíma. Áður var hann hamingjusamlega giftur fjölskyldufaðir og farsæll yfirmaður í rannsóknarlögreglunni en nú reynir hann að láta dagana líða hjá og láta lítið á sér bera.
Forvitni Guðgeirs er vakin og hann dregst inn í óvænta atburðarás þegar ung erlend kona hverfur sporlaust. �?að er engu líkara en að hún hafi aldrei verið til.
Inni í Lóni býr kona með fullorðnum syni sínum. Hvaða óhugnaður býr í einangruninni?
Refurinn er fjórða glæpasaga Sólveigar Pálsdóttur. Fyrri bækur hennar hafa fengið lofsamlega dóma og tvær þeirra hafa verið gefnar út í �?ýskalandi.
Fjallvegahlaup �?? Stefán Gíslason
Fjallvegahlaup hefur að geyma lifandi leiðarlýsingar 50 fjallvega víðs vegar um landið auk veglegs undirbúningskafla og fjölda góðra ráða. Leiðirnar er hægt að hlaupa eða ganga, allt eftir getu hvers og eins og eru af ýmsum toga. �?að sem leiðirnar eiga sameiginlegt er að þær eru allar 9 kílómetrar eða lengri, ná að minnsta kosti 160 metra hæð yfir sjó og tengja saman tvö byggðarlög eða áhugaverða staði. Leiðirnar geta verið fornar göngu- eða reiðleiðir eða fáfarnir bílvegir (F-vegir). Hverri leið fylgir ítarleg leiðarlýsing, kort og GPS-hnit, aragrúi ljósmynda og upplýsingar um staðarhætti og aðstæður. �?ar að auki má finna mikinn sögulegan og landfræðilegan fróðleik um þær leiðir sem hlaupið eða gengið er hverju sinni.
Stefán Gíslason er umhverfisfræðingur sem ákvað á fimmtugsafmæli sínu að hlaupa 50 fjallvegi fyrir sextugt.
Ljóðasafn Tómasar Guðmundssonar
Tómas Guðmundsson er eitt ástsælasta ljóðskáld Íslendinga. Hann gaf út fyrstu ljóðabók sína, Við sundin blá, 24 ára gamall en útgefnar ljóðabækur hans áttu eftir að verða fimm talsins og birtast þær hér saman í einni bók. �?ekktasta ljóðabók Tómasar er án efa Fagra veröld sem sló eftirminnilega í gegn og gerði Tómas að þjóðskáldi í einni svipan.
Ljóðheimur Tómasar er heimur fegurðar, samræmis og rómantíkur en ljóð hans eru einnig jarðbundin, ákveðin, kímin, háðsk og ort með gífurlegri nákvæmni. Tómas er iðulega nefndur Reykjavíkurskáldið enda var höfuðborgin yrkisefni hans í mörgum ljóðanna.
Ljóðabækur Tómasar hafa lengi verið ófáanlegar en koma nú fyrir sjónir lesenda í nýjum búningi með formála eftir Sölva Björn Sigurðsson.
Kynningin í Vestmannaeyjum verður í höndum Sölva Björns en hann hefur skrifað skáldsögur og ljóð og unnið við þýðingar.

Nýjustu fréttir

Baldur verður áfram í Eyjum
Eyjakonur í undanúrslit eftir framlengdan leik gegn FH
Hátíðarhöld 17. júní færð inn í Íþróttamiðstöðina
Sjómannsfjölskyldan mín
Topplið FH mætir ÍBV í bikarslag á Hásteinsvelli
Vertíðin 2026
Skoðar Vestmannaeyjar fyrir mögulega fóðurverksmiðju
Herjólfur III bíður enn eftir haffærisskírteini

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.