ÍBV sigraði Selfoss þegar liðin mættust í Olísdeild karla í handbolta í dag, lokatölur 30:31.
Leikurinn var jafn til að byrja með en þegar leið á fyrri hálfleikinn náðu Eyjamenn undirtökunum og leiddu með tveimur mörkum þegar flautað var til hálfleiks, staðan 17:15.
Eyjamenn héldu uppteknum hætti í síðari hálfleik og leiddu en Selfyssingar voru þó alltaf skammt undan. Eftir spennandi lokamínútur sigldu leikmenn ÍBV eins marks sigri í höfn eins og fyrr segir.
Hjá Eyjamönnum skoraði Agnar Smári Jónsson 12 mörk og þeir Theodór Sigurbjörnsson og Róbert Hostert skoruðu báðir sjö mörk. Aron Rafn Eðvarðsson varði níu skot.