Helga og Arnór og Gylfi kynntu Peter, Paul og Mary
�?að var vel til fundið hjá þeim tónlistarhjónum, Arnóri Hermannssyni og Helgu Jónsdóttur að kynna söngtríóið Peter, Paul og Mary í Eldheimum á laugardagskvöldið. Ekki skemmdi að fá Gylfa, Einar Gylfa Jónsson, bróður Helgu til að kynna lögin og segja frá þeim og höfundum þeirra.
Söngtríóíð Peter, Paul and Mary varð til í New York árið 1961 og náði miklum vinsældum með lögum eftir Bob Dylan og fleiri höfunda. Líka lögum eins og If I Had a Hammer, Cruel War, Leaving on a Jet Plane, Where Have All the Flowers Gone, 500 Miles, Lemon Tree, In the Early Morning Rain, All My Trials og Puff (The Magic Dragon).
Nutu þau öll mikilla vinsælda og voru starfandi með hléum til ársins 2009 þegar Mary lést.
Arnór og Helga leggja alúð í allt sem þau gera í tónlistinni, gott tónlistarfólk sem alltaf er gaman að hlusta á. �?au stóðu undir væntingum og vel það og kunnu gestir, sem fylltu salinn í Eldheimum vel að meta það sem fram var borið.
Peter, Paul og Mary létu vel í eyrum á sínum tíma og flest lögin frábær en að þau hefðu verið miklir örlagavaldar í tónlistarsögunni hafði sá sem þetta ritar ekki hugmynd um. Gylfi hafði víða leitað fanga og kom manni flest á óvart. �?að var ekki bara að þau hefðu komið lögum listamanna eins og Bob Dylan á framfæri. �?au tóku mörg eldri lög og komu þeim á þann stall í tónlistarsögunni sem þau eiga skilið.
�?etta var ánægjuleg kvöldstund og þau hjónakorn losnuðu ekki fyrr en eftir þrjú aukalög. Og punkturinn yfir I-ið var fróðleikurinn um feril Peter, Paul og Mary sem Gylfi deildi með gestum. Eru Peter, Paul og Mary með mikilvægasta tónlistarfólki síðustu aldar.

Nýjustu fréttir

Jón Óli á sínu þriðja ári með konurnar 
Elliði Snær og Elmar í eldlínunni í Þýskalandi
Páskaeggjaleit Sjálfstæðisflokksins
Erfitt tíðarfar undanfarið en góður afli hjá Kap VE
Prúðmannleg pólitík
Páskar í Landakirkju
Bræður frá Úkraínu fundu ró í Vestmannaeyjum 
Óskar og Sigurjón margfaldir aflakóngar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.