Konan sem elskaði svo heitt og gat ekki gleymt
Eyjakonan Kristín Jóhannsdóttir hefur víða komið við á lífsleiðinni, síðustu ár sem safnstjóri Eldheima en í haust stígur hún fram sem rithöfundur og sendir frá sér bókina, Ekki gleyma mér sem hún kynnti í Sagnheimum á fimmdaginn fyrir fullu húsi.
�?að var varla hægt að gera meiri uppreisn gegn upprunanum á síðustu árum tíunda áratugar tuttugustu aldarinnar en Kristín gerði þegar hún ákvað að fara til náms í Austur-�?ýskalandi. Verandi dóttir Jóa á Hólnum, Jóhanns Friðfinnssonar sem var bara skráður í tvö félög um ævina, Sjálfstæðisflokkinn og �?jóðkirkjuna. Kristín sagði að dag væri þetta eins og hún sendi syni sína til Norður-Kóreu.
Sögusvið bókarinnar er Leipzig þýska alþýðulýðveldisins þar sem Kristín kynnist nýjum veruleika og stóru ástinni í lífi sínu. Hann hvarf henni með falli járntjaldsins en leiðir þeirra lágu saman mörgum árum síðar en ná þau saman? �?eirri spurningu var ekki svarað á fimmtudaginn.
Af kynningunni að dæma gefur bók Kristína góða sýn inn daglegt líf í Austur-�?ýskalandi sem var kannski ekki alslæmt. Hún er líka eldheit ástarsaga ungrar konu frá Vestmannaeyjum sem hélt á ókunnar slóðir og mætir þar örlögum sínum. Bók sem enn bíður blaðamanns, en ekki lengi.

Nýjustu fréttir

Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.