Leikfélag Vestmannaeyja mun frumsýna leikritið Klaufar og kóngsdætur nk. laugardag en verkið er byggt á nokkrum af vinsælustu ævintýrum danska skáldsins H.C. Andersen. Árni Grétar Jóhannsson leikstýrir verkinu en hann er menntaður leikstjóri frá Rose Bruford College of Theatre and Drama í London. Árni Grétar leikstýrði einnig Benedikt búálfi fyrir LV í fyrra en þar fyrir utan hefur hann unnið hjá Frystiklefanum á Rifi, sem er lítið atvinnuleikhús, ásamt því að setja á svið leikrit fyrir hina ýmsu framhaldsskóla. Blaðamaður ræddi nánar við Árna Grétar og Unni Guðgeirsdóttur, formann LV.
�?ekkt verk H.C. Andersen soðin saman í eina sýningu
Eins og fyrr segir er stefnt á að frumsýna leikritið nk. laugardag, 11. nóvember, þ.e.a.s. ef allt gengur að óskum. �??Klaufar og kóngsdætur var upphaflega samið fyrir �?jóðleikhúsið fyrir um tíu árum síðan, til heiðurs H.C. Andersen sem hefði þá orðið 200 ára. �?ar voru tekin öll hans helstu og þekktustu ævintýri og soðin saman í eina sýningu sem nefnist Klaufar og kóngsdætur. Verkin sem um ræðir eru Eldfærin, Hans klaufi, Svínahirðirinn, Næturgalinn, Förunauturinn og Litla stúlkan með eldspýturnar. �?að er óhætt að segja að það sé stiklað á stóru í nútímalegri útgáfu, mikið af húmor og hressleika. Svo er hellings tónlist í þessu þannig að þetta er hálfgerður söngleikur líka,�?? segir Árni Grétar.
Í mörgum hlutverkum eru ungir leikarar sem eru að taka sín fyrstu skref í sviði leiklistar og ef marka má orð þeirra Árna og Unnar þá er áhuginn á leiklist gríðarlegur meðal ungmenna í Vestmannaeyjum. �??Í fyrra vorum við með ágætis hóp af krökkum í Benedikt búálfi og þar sem flestir svo spenntir að koma aftur ákváðum við að hafa lítið helgarnámskeið. �?að spurðist fljótt og örugglega út í Grunnskólanum og fengum við þrefalt fleiri en við bjuggumst við að fá. Í framhaldinu ákváðum við að velja verk þar sem við gætum boðið öllum sem vildu taka þátt að komast á svið, þó svo hlutverkin yrðu náttúrulega misstór. Stefnan var s.s. að byggja upp enn þéttari grasrót í leikhúsinu og þetta verk var fyrir valinu en um 30 krakkar taka þátt í sýningunni og sumir með allt að fimm hlutverk,�?? segir Árni Grétar.
Kúnst að finna jafnvægi milli aga og leiks
Hvernig er að leikstýra krökkum? �??�?að er auðvitað ákveðin áskorun, ég tala náttúrulega ekki um þegar það eru þetta margir. Maður vill líka alltaf halda í gleðina og hafa þetta gaman og getur verið vandasamt að finna jafnvægið á milli aga og vinnu annars vegar og leiks hins vegar. En þetta hefur gengið vel, það er mikið af talentum í hópnum og áskorunin því bara ánægjuleg. Við höfum líka kallað eftir aðstoð foreldra og þeir hafa verið ótrúlega jákvæðir, duglegir og virkir. �?egar við báðum t.d. um hjálp við smíðar þá komu ótal hendur á loft. Sömu sögu má segja með smink- og búningsherbergin, foreldrarnir er boðnir og búnir og taka fullan þátt sem er ómetanlegt og ekki sjálfgefið,�?? segir Árni Grétar.
Hægt er að taka leikhúsið sem val í Grunnskólanum og hentar það afar vel fyrir þá einstaklinga sem finna sig t.d. ekki í hópíþróttum og segir Unnur marga krakka hafa hreinlega umbreyst eftir að hafa tekið þátt í starfinu. �??�?g get eiginlega bara lýst því, krakkar sem voru mikið til baka eru farnir að láta mikið til sín taka.�?? Árni tekur í sama streng og segir leikhúsið góðan vettvang fyrir óframfærna krakka. �??Maður kemst ekki upp með neitt annað í leikhúsi en að starfa með öðrum og vinna í hóp. Leikhúsið krefst einnig mikils aga og kennir krökkunum að vinna, virða hvert annað og mynda samheldin hóp sem hefur eitt sameiginlegt markmið. �?að er ótrúlega dýrmætt fyrir marga krakka. �?að hefur orðið alveg ótrúleg breyting á krökkunum frá því þeir komu fyrst og hvað þá heldur þegar kemur að frumsýningunni. �?au neyðast til að láta rödd sína hljóma og það er eðli leikhússins að draga út styrkleika fólks, bæta framkomu og sjálfsöryggi sem fylgir því út í lífið.
Að lokum lofa Árni Grétar og Unnur mjög skemmtilegri og litríkri sýningu. �??Við erum með hátt í hundrað búninga sem gerir það að verkum að það verður mikið líf og fjör baksviðs þegar 30 manns verða að skipta um búninga og þess háttar. �?etta verður lifandi, skemmtileg og fyndin sýning. �?ess má einnig geta að við lentum í smá basli með tónlistina í sýningunni en Gísli Stefánsson bjargaði okkur algjörlega og sömuleiðis Kolbrún Sjöfn Sigurbjörnsdóttir sem sá um að sauma erfiðustu búningana fyrir okkur. Við skorum bara á alla að mæta í leikhúsið því þetta er menning og ef fólk vill viðhalda menningunni þá verður það að mæta, við þurfum á því að halda. Og þó þetta sé í grunninn barnasýning þá mælum við með þessu fyrir alla því húmorinn er þannig að allir hafa gaman af.�??