Blaðaútgáfa og rekstur prentsmiðja í Eyjum 100 ára.
�?ess verður minnst sunnudaginn 12. nóv. nk. kl. 13.00-15.00 á opnu málþingi í Einarsstofu í Safnahúsi að 2017 eru liðin 100 ár frá því blaðaútgáfa og prentsmiðjurekstur hófst í Eyjum. Fyrstu blöðin sem komu út í Vestmannaeyjum voru Fréttir og síðar Skeggi sem var fyrsta verkefni prentsmiðju sem Gísli J. Johnsen keypti til Eyja 1917 og var sett upp í húsinu Edinborg.
Undirbúningur þessa merkisatburðar í menningarsögu Eyjanna hefur staðið í nokkurn tíma undir forystu Arnars Sigurmundssonar, Helgu Hallbergsdóttur og Kára Bjarnasonar.
Dagskráin verður fjölbreytt og fer fram í Einarsstofu í Safnahúsinu og í framhaldinu verður boðið upp á rútuferð þar sem staldrað verður við á leiðinni á völdum stöðum prentsögunnar.
Á dagskránni munu eftirfarandi flytja stutt erindi:
Arnar Sigurmundsson sem mun stikla á stóru yfir söguna frá 1917 og hina fjölskrúðugu blaða- og tímaritaútgáfu og prentsmiðja í Eyjum.
Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir sem kynnir Átthagadeild Bókasafnsins.
�?mar Garðarsson sem rifjar um eftirminnileg atriði úr liðlega 30 ára blaðamennskuferli.
Hermann Einarsson sem fjallar um fyrstu kynni sín af prentsmiðjunni Eyrúnu og Gunnari prentara.
�?skar �?lafsson sem segir frá kynnum sínum af lærimeistara sínum Hafsteini Guðmundssyni prentsmiðjustjóra í Hólum, sem bjó sín uppvaxtarár í Eyjum og var einn fremsti bókagerðarmaður landsins.
Á milli dagskráratriða mun Sigurmundur G. Einarsson flytja lög eftir ljóðskáld úr Eyjum.
Að þessu loknu, um kl. 14.00, verður boðið upp á rútuferð og staldrað við á nokkrum stöðum þar sem prentsmiðjur hafa verið til húsa og lesinn stuttur texti frá viðkomandi prestsmiðju. Rútuferðinni lýkur um kl. 15.00 við Safnahúsið og verður þá viðstöddum boðið í kaffi. Málþinginu stýrir Kári Bjarnason, forstöðumaður Safnahússins. Allir eru hjartanlega velkomnir á þetta opna málþing og aðgangur ókeypis.

Nýjustu fréttir

Baldur verður áfram í Eyjum
Eyjakonur í undanúrslit eftir framlengdan leik gegn FH
Hátíðarhöld 17. júní færð inn í Íþróttamiðstöðina
Sjómannsfjölskyldan mín
Topplið FH mætir ÍBV í bikarslag á Hásteinsvelli
Vertíðin 2026
Skoðar Vestmannaeyjar fyrir mögulega fóðurverksmiðju
Herjólfur III bíður enn eftir haffærisskírteini
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.