Fimm fegnu úthlutun frá SASS í Vestmannaeyjum
Verkefnastjórn Sóknaráætlunar Suðurlands á vegum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga fjallaði um tillögur fagráðs nýsköpunar og fagráðs menningar um úthlutun styrkveitinga til verkefna úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands, í síðari úthlutun ársins. Alls bárust sjóðnum 98 umsóknir að þessu sinni, þar af 36 nýsköpunarverkefni og 62 menningarverkefni.
Niðurstaða verkefnastjórnar er að veita 47 menningarverkefnum styrki að fjárhæð 21.700.000, kr. og 24 nýsköpunarverkefnum að fjárhæð 14.920.000, kr. Samtals er því 71 verkefni veittur styrkur í síðari úthlutun ársins að fjárhæð 36.620.000, kr.
Hæstu styrkina hlutu Júlíus Magnús Pálsson, 2 mkr. til verkefnisins �??�?róun á EC Storage lausnamengi�?? í flokki atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna og Oddafélagið, 1,5 mkr. til verkefnisins �??Fornleifaskóli unga fólksins í Odda á Rangárvöllum�?? í flokki menningarverkefna.
�?eir aðilar sem fengu úthlutun í Vestmannaeyjum voru, Margrét Lilja Magnúsdóttir fyrir hönd Sæheimar, hlutu styrk uppá 400.000 krónur fyrir Lundapysjur í Vestmannaeyjabæ 2. Leikfélag Vestmannaeyja hlaut tvo stykri, annarsvegar 350.000 krónur fyrir leikritið Klaufar og Kóngsdætur og hinsvegar 350.000 krónur fyrir Bjartmar – söngleikur. Sagnheimar og Eldheimar fengu 300.000 krónur fyrir menningarheimar mætast, Grísk menningarhátíð. Langa ehf. hlaut tvo styrki, 850.000 krónur fyrir sjálfvirkan fiskþurrkunarklefi og 700.000 krónur fyrir gæludýranammi úr fiskroði, framhaldsverkefni. The brothers brewery hlaut 400.000 krónur fyrir vöruþróun með samvinnu og samstarfi við erlend brugghús.

Nýjustu fréttir

ÍBV semur við serbneskan framherja
Metár og hagnaður langt yfir áætlun
Jón Óli á sínu þriðja ári með konurnar 
Elliði Snær og Elmar í eldlínunni í Þýskalandi
Páskaeggjaleit Sjálfstæðisflokksins
Erfitt tíðarfar undanfarið en góður afli hjá Kap VE
Prúðmannleg pólitík
Páskar í Landakirkju
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.