Hver er framtíðarsýn Suðurlands sem ferðaþjónustusvæði?
Hvar viljum við vera eftir þrjú ár? Hvaða hlutverk viljum við að ferðaþjónustan spili á áfangastað?
Frá því á vormánuðum hefur verið unnið að gerð áfangastaðaáætlunar DMP fyrir Suðurland og hefur sú vinna farið vel af stað. Skipað var í vinnuhópa í sumar og fyrstu tveimur vinnufundum svæða á Suðurlandi lokið. Valið var inn í vinnuhópana út frá hagaðilagreiningu, sem búið var að vinna í undirbúningsfasa verkefnisins, þar sem markmiðið var að fá raddir stærstu hagaðila að borðinu. Einnig var íbúum og hagaðilum á hverju svæði fyrir sig gefinn kostur á að bjóða sig fram í vinnuna þegar auglýst var eftir fulltrúum svæða í héraðsblöðunum í byrjun sumars.
Svæðaskipting á Suðurlandi er í samræmi við skiptingu sem kom fram í Markaðsgreiningu Suðurlands:
Vestursvæði: �?lfus, Hveragerðisbær, Sveitafélagið Árborg, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Bláskógarbyggð, Hrunamannahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Ásahreppur og Rangárþing ytra.
Miðsvæði: Rangárþing eystra, Vestmannaeyjabær, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur.
Austursvæði: Sveitarfélagið Hornafjörður.
Hvað er áfangastaðaáætlun DMP?
Áfangastaðaáætlun DMP (Destination Management Plan) er heildstætt ferli þar sem litið er til skipulags og samþættingar í þróun og stýringu allra þeirra þátta sem geta haft áhrif á upplifun ferðamanna á viðkomandi svæði/áfangastað, þar með talið:
�?? þarfir gesta og heimamanna
�?? þarfir fyrirtækja og umhverfis
Af hverju DMP? Með gerð áfangastaðaáætlunar DMP fyrir Suðurland verður til heildræn stefna sem lýtur að ferðaþjónustunni sem atvinnugrein, sveitarfélögum, íbúum, umhverfi og samfélaginu í heild sinni.
Fyrstu vinnufundir voru haldnir á Höfn, í Vestmannaeyjum og í Bláskógabyggð í september og var yfirskrift fundanna Hver er staðan? �?ar var dregið fram hvað fólk er ánægt með á svæðinu annarsvegar og hvað má bæta á svæðinu hins vegar. Á fundunum lágu fyrir eftirtaldir umræðurammar sem þátttakendur tóku afstöðu til; opinberir aðilar, innviðir, samfélagið, náttúran, ímynd og gæði og svo samtal og samvinna.
Í október voru vinnufundir haldnir í Suðursveit, Vík og �?orlákshöfn þar sem unnið var með framtíðarsýn svæðanna útfrá sömu umræðurömmum.
Nú í lok nóvember eru þriðju vinnufundirnir haldnir þar sem farið verður í meginmarkmið, starfsmarkmið og grunninn að aðgerðaráætlun fyrir hvert svæði fyrir sig.
Lagt verður upp með að halda opna íbúafundi eftir áramót þar sem staðan á vinnunni verður kynnt og íbúum og öðrum hagaðilum gefið tækifæri á að koma með sitt innlegg eða athugasemdir.
Nánari upplýsingar um verkefnið á Suðurlandi sem og á landsvísu má finna á þessum vefföngum: www.south.is/is/dmp og www.ferdamalastofa.is/dmp
Verkefnastjórar áfangastaðaáætlana DMP á Suðurlandi eru Anna Valgerður Sigurðardóttir, ferðamálafræðingur (anna@south.is) og Laufey Guðmundsdóttir, verkefnastjóri MPM (laufey@south.is). Starfsstöð þeirra er hjá Markaðsstofu Suðurlands á Selfossi, sem hýsir verkefnið sem er í eigu Ferðamálastofu. Mikil og þétt samvinna er með öllum svæðum og eru tengiliðir á hverju svæði; Suðvestur svæði Ásborg Arnþórsdóttir, Miðsvæði Árný Lára Karvelsdóttir og Suðaustur svæði Árdís Erna Halldórsdóttir.
F.h. áfangastaðaáætlana DMP á Suðurlandi
Anna Valgerður Sigurðardóttir
Laufey Guðmundsdóttir

Nýjustu fréttir

Tengdadæturnar  Sigurlaug, Emma og Inga lét til sín taka
Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar
Framleging á flugi samþykkt fram í miðjan apríl
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.