Elliði Vignisson: �?að þarf kjark til að breyta
Nafn Gísla J. Johnsen er samtvinnað sögu Vestmannaeyja. Hann var hér fæddur 10. mars 1881. Með verslun sinni og útgerðarrekstri átti hann stóran þátt í að bæla niður þá einokun sem hafi legið sem mara á Eyjamönnum í mannsaldir. �?að var þó bara byrjunin á ævintýranlegri uppbyggingu Gísla. Eins og allir sem þora að gára vatnið var Gísli umdeildur og oft reyndist honum erfitt að glíma við neikvæðni samfélagsins og óttann við breytingar.
Árið 1899, þegar Gísli var einungis 18 ára hóf hann verslunarrekstur í grimmri samkeppni við einokunarverslun Brydes. Vegna ungs aldurs fór verslunin þó ekki yfir á hans nafn fyrr en árið 1902. Árið 1904 keypti verslun hans eða �??firmað�?? eins og það var þá kallað fyrsta mótorbátinn sem kom til Suðurlands. �?ar með varð til grunnurinn að Vestmannaeyjum eins og við þekkjum þær í dag. Á fyrsta áratug aldarinnar fjölgaði íbúum í Eyjum úr 607 í 1492 eða um 885 manns. Á þessum árum var lögð sú undirstaða sem skapaði frumkvæði og forystu Vestmannaeyinga í útgerð og sjávarútvegi æ síðan. Gísli lét sig fleira varða en eingöngu verslun og viðskipti og var hann til að mynda einn af hvatamönnum þess að byggður var viti á Stórhöfða og framkvæmdi það verk fyrir landsstjórnina.
Árið 1907 stofnaði firmað vélaverkstaði hér í Eyjum og hóf meðal annars innflutning á frystivélum og ári síðar reisti það stórt frystihús sem einnig var hið fyrsta í sinni röð hér á landi. 1911 stofnaði hann talsímafélag í Eyjum og kom á símasambandi við land og stuttu seinna var, undir hans stjórn, hafist handa við byggingar á [gamla] spítalanum sem síðar varð ráðhús . Árið 1913 reisti firma Gísla fyrstu fiskimjölsversmiðju hér á landi. �?ví var svo fylgt eftir með lýsisbræðslu. 1920 byggði firmað fyrstu olíugeyma hér á landi sem varð til þess að vélvæðing landsins gekk hraðar fyrir sig og olíuverð lækkaði til muna. Afrekin eru mörg fleiri og nánast óhætt að fullyrða að saga Vestmannaeyja og jafnvel landsins alls hefði orðið önnur ef hans framsýni og hugrekkis hefði ekki notið við.
Fyrir fólk sem lifir í ólgu samtímans og finnst allar hugmyndir um breytingar og nýjungar mæta andbyr er ágætt að lesa vandlega þessi orð úr þjóðhátíðarblaði Vísis frá 17. Júní 1944:
�??En Gísli hefir oft og tíðum átt við ramman reip að draga, þegar hann vildi koma einhverjum nýjungum á framfæri. Almenningur allra tíma er þannig gerður, að hann veigrar sér við að stíga út af braut vanans og hræðist erfiðleika brautryðjendastarfsins og vill helzt alltaf standa á sama sjónarhól og hjakka í sama hjólfarinu frá ári til árs og öld til aldar. �?að hvílir því á herðum frumkvöðlanna að koma nýjungunum i framkvæmd, en launin eru annað hvort þakkir almennings eða vanvirða sem oftar er�??
�?að verður alltaf til úrtölufólk. Verum samt óhrædd við breytingar og stígum af braut vanans. Í framtíðinni felast tækifæri ef við þorum að nýta þau.

Nýjustu fréttir

Tengdadæturnar  Sigurlaug, Emma og Inga lét til sín taka
Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar
Framleging á flugi samþykkt fram í miðjan apríl
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.