Segja frá reynslu sinni af því að missa barn
�?ann 30. nóvember nk. kemur út bókin, Móðir missir máttur sem þær Oddný �?. Garðarsdóttir, Vera Björk Einarsdóttir og �?óranna M. Sigurbergsdóttir skrifa. Allar hafa þær misst barn og börn og segja frá þessari reynslu sinni í bókinni sem Skálholtsútgáfan gefur út. �?ær langar að miðla reynslu sinni til fólks sem hefur upplifað ástvinamissi, ekki síst til ættingja og vina þeirra sem missa börn á voveiflegan hátt. Hlýtur bókin að vera með þeim athyglisverðari sem koma út fyrir jólin.
Í bókinni fjalla þær um sameiginlega reynslu af því að hafa misst barn og vonast til að hún geti orðið öðrum til uppörvunar og stuðnings. Árni Garðar Hjaltason, sonur Veru Bjarkar sem er fæddur 4. apríl 1988 lést 28. júlí 1992 í bílslysi í Vestmannaeyjum. Erlingur Geir Yngvason, sonur Oddnýjar sem er fæddur 23. júlí 1994 lést 26. febrúar 2000 úr bráðasýkingu af völdum heilahimnubólgu. Sigurjón Steingrímsson sem er fæddur 18. nóvember 1978 lést 30. maí 1996 í bílslysi á Reykjanesbraut og Ríkharður �?rn Steingrímsson sem er fæddur 23. apríl 1976 og varð bráðkvaddur 21. apríl 2016 eru synir �?órönnu.
Oddný, Vera Björk og �?óranna fluttu hingað eftir Vestmannaeyjagosið 1973. Settust hér að og eignuðust heimili og börn. �??Við höfum allar orðið fyrir því að missa barn skyndilega. Í því mikla sorgarferli sem eftir fylgdi höfum við þurft að glíma við hversdagsleikann og sætta okkur við að lífið heldur áfram. Við máttum ekki gleyma að sinna áfram hlutverki okkar innan fjölskyldunnar, hlúa að hinum börnunum og sinna heimilisstörfum. �?að er merkilegt hvernig við stöllur, með okkar sameiginlegu reynslu, höfum verið leiddar saman í lífinu. Við höfum unnið úr reynslunni á svipaðan hátt en samt hver á sinn máta. Við höfum hjálpað hver annarri beint og óbeint. Við kynntumst í Aglow í Vestmanneyjum,�?? segja þær í formálanum.
�?ær höfðu lengi hugsað hvort þær ættu að skrifa um reynsluna af sorginni og hvað varð þeim til hjálpar. �??�?etta hófst allt í febrúar 2013 þegar við vorum allar að fara á ráðstefnu Aglow í Reykjavík. Nokkru áður vaknaði Vera Björk um miðja nótt og fannst sem Guð væri að tala til sín. Í draumnum sagði Guð að við þrjár, Vera Björk, Oddný og �?óranna, ættum að skrifa bók saman. Vera Björk nefndi bókarskrif hikandi við Oddnýju og �?órönnu en þær tóku strax vel í hugmyndina. �?að var næstum eins og hugmyndin kæmi þeim ekki á óvart. Okkur fannst þetta öllum svo sjálfsagt.�??
Um sumarið hófust þær handa við að skrifa sem ekki var átakalaust. �??�?hjákvæmilegt var fyrir okkur að rifja upp margar sárar minningar. �?að var ótrúlega erfitt að setjast niður og finna fyrir sársaukanum sem minningarnar kölluðu fram. Sársaukinn hjálpaði okkur að tengja höfuð og hjarta. Hann var mikilvægur hluti af ferlinu. �?essi vinna var góð og gagnleg fyrir okkur og fjölskyldur okkar. Ferlið hjálpaði okkur mikið í úrvinnslu þessara sáru minninga. �?að hjálpaði okkur við að sleppa takinu á þeim og horfa til framtíðar. Um haustið hefðum við getað látið staðar numið. Við hefðum geta litið á þetta sem úrvinnslu okkar og látið kyrrt liggja, en við höfðum sagt nokkrum frá fyrirætluðum bókarskrifum og fengið mikla hvatningu. �?ví var ekki um annað að ræða en að halda áfram. �?egar við vorum að leggja lokahönd á skrifin í apríl 2016 gerðist sá voveiflegi atburður að Ríkharður �?rn, sonur �?órönnu, varð bráðkvaddur í utanlandsferð með fjölskyldu sinni. Í stað þess að gefast upp ákvað �?óranna að bæta kafla við bókina.�??
Og nú er bókin að koma út og verður kynnt í útgáfuhófi í Sagnheimum laugardaginn 2. desember klukkan 16.00 og í Reykjavík laugardaginn 9. desember hjá Skálholtsútgáfu.

Nýjustu fréttir

Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar
Framleging á flugi samþykkt fram í miðjan apríl
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.