Kennarafélag Vestmannaeyja lýsir yfir áhyggjum af álagi vegna fjarveru skólastjóra
Á aðalfundi Kennarafélags Vestmannaeyja sem haldinn var þriðjudaginn 24. október sl. lýsir félagið yfir áhyggjum af því álagi sem skapast vegna fjarveru skólastjóra í þau skipti sem hann sinnir starfi sínu sem landsliðsþjálfari Hollands í handbolta. Telja félagsmenn það mikilvægt að gengið verði frá því fyrirfram að staðgengill sinni starfi skólastjóra sbr. kjarasamning FG og SNS frá árinu 2016 og fári jafnframt annan starfsmann sér við hlið á meðan skólastjóri er í burtu til að tryggja að álagið leggist ekki allt á staðgengilinn. Segir enn fremur í ályktun félagsins að undanfarin misseri hafa stjórnendur skólans verið undir gífurlegu álagi sem hefur haft áhrif á skólastarf almennt. Er einni tekið fram að félagsmenn óski Erlingi Richardssyni, skólastjóra, velfarnaðar í nýju starfi og að það þeir sýni sjónarmiðum hans fullkominn skilning enda ráðning hans tímabundin og því óvissa með framhald á starfi hans við skólann.

Nýjustu fréttir

Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar
Framleging á flugi samþykkt fram í miðjan apríl
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.