Markaðsátak Vestmannaeyjabæjar undir orðinu �??Ey�?? hefur vakið mikla eftirtekt og viðbrögð hjá Eyjamönnum. Átakið á að draga saman það sem vel er gert í bæjarfélaginu, styðja við jákvæðar hugmyndir og efla það góða starf sem víða er unnið. Við hjá Eyjafréttum vildum fá að vita aðeins meira um átakið og höfðum því samband við Raquel Díaz, verkefnastjóra markaðs- og ferðamála hjá �?ekkingarsetri Vestmannaeyja og spurðum hana aðeins út í verkefnið.
Fyrir hvað á EY að standa?
Ey er ímynd- og markaðasátak sem Vestmannaeyjabær stendur fyrir og er því ætlað að virkja frumkvæði bæjarbúa og fyrirtækja til góðra verka, efla samstöðu og skerpa á markaðsáherslum Vestmannaeyjabæjar og jákvæðum þáttum í mannlífi Eyjamanna. Átakinu var ýtt úr vör 11. nóvember sl. í gosminjasafninu Eldheimum þar sem vefur átaksins var settur í loftið til að sýna þær forsendur sem lagt er upp með og kynna markaðsherferðina. Vefnum er ætlað að styðja við það góða starf sem þegar er unnið á þeim vettvangi.
Á næstu misserum mun Vestmannaeyjabær standa fyrir ýmsum viðburðum undir merkjum Ey. Má í því sambandi nefna nýjar bæjarhátíðir á borð við matarhátíðina Gúrmey og götumarkaðinn Gleymmérei ásamt ýmsum öðrum menningaviðburðum og skemmtilegheitum. �?á verða kynntar nýjar og skemmtilegar gönguleiðir, ætlaðar heimamönnum og gestum Vestmannaeyja, einnig sem hluti af átakinu Ey.
Af hverju var farið í átakið og af hverju var þessi tiltekna leið farin?
�??�?að er svo ótrúlega margt gott í boði hér í Vestmannaeyjum, fjölbreyttir viðburðir, frábærir veintingastaðir, skemmtileg söfn, öflugt íþrottastarf, mögnuð náttúra, kröftugir íbúar og margt margt fleira en okkur fannst að þetta góða og mikla starf næði ekki nægilega vel til fólks. Að Vestmannaeyjabær væri dreifður og ómarkviss í markaðsáherslum sínum. �?að vantaði að gera allt hið góða starf í Vestmannaeyjum aðgengilegra eða setja í �??betri umbúðir�?? þannig að við ákváðum að draga fram þessa góðu jákvæðu hluti sem eru í gangi í Eyjum og samtímis að gera eitthvað skemmtilegt til að efla samstöðu og jákvæðni meðal íbúa Vestmannaeyja. �?ar sem þetta er nýlunda í starfi Vestmannaeyjabæjar var ákveðið að gera hlutina vel alveg frá byrjun þannig að við fórum fyrst í stefnumótunarvinnu til að átta okkur á því hverjar áherslurnar ættu að vera og hvaða leið væri best fyrir svona verkefni. �?að er mjög mikilvægt að vera með sterkan grunn til að byggja á og að það sé alveg skýrt hver sérstaða okkar er og hvert við viljum stefna þegar ráðist er í verkefni sem þetta. Við fengum því mjög góðan hóp af Eyjafólki til að aðstoða okkur með þá vinnu. �?að er nefnilega mjög mikilvægt að hlusta á fólkið sem þekkir Eyjarnar best. Eftir ítarlega greiningu og samtöl við ýmsa aðila í Vestmannaeyjum var tóninn settur.
Svokallað �??City branding�?? hefur gefist vel á öðrum stöðum og því var valið að fara þá leið. Sem sagt að reyna að láta ákveðið útlit og ákveðna stefnu endurspegla allt hið góða og jákvæða sem bæjarfélagið stendur fyrir. Nokkuð var rætt um hvort ráðast ætti í birtingar í landsmiðlum en þess í stað var ákveðið að horfa til þeirra miðla sem eru í Eyjum með það í huga að vinna með þeim sem áhuga hefðu á og bæta þar við. Reyna að stuðla að stuðningi við lifandi miðil á netinu til þess að draga fram jákvæða og áhugaverða hluti sem verið er að gera í Eyjum. �?á er rík áhersla á að nýta samfélagsmiðla til að koma efninu á framfæri og reyna að virkja sem mest af heimafólki til að hjálpa okkur að dreifa boðskapnum. �?annig getur verkefnið lifað áfram og vaxið og dafnað. Til að sýna dæmi um hvernig málið er hugsað var gefið út lítið vefrit með 7 stuttum greinum og í framhaldinu stefnt að því að vinna þá hugmynd áfram með aðilum hér heima. �?annig er einlægur vilji til að vinna með þeim sem á því hafa áhuga og erum við þegar byrjuð að ræða hugmyndir um slíkt. �?g vil taka fram að tímaritið er þó bara bara einn lítill hluti af heildar markaðssátakinu sem er rétt að byrja.�?�
Hvert er markmiðið með átakinu?
�??Við vildum fyrst og fremst draga fram allt það góða og skemmtilega sem er í gangi í Eyjum og skerpa á markaðsáherslum Vestmannaeyjabæjar. Búa til jákvæða umgjörð um okkar frábæru íbúa og fyrirtæki þeirra. Í kjölfarið viljum við virkja bæjarbúa og fyrirtækin til góðra verka og efla samstöðu innan bæjarfélagsins. Við eigum öll Ey saman, og öllum er því frjálst að koma með hugmyndir að skemmtilegum umfjöllunum og viðburðum sem gætu hentað átakinu.�??
Hvernig viltu sjá fyrirtæki og bæjarbúa nýta átakið Ey�??ið?
�??Við vonumst til þess að átakið verði einskonar stökkpallur í sviðsljósið. Við sem heild erum sterkari og sýnilegri þegar við komum sameinuð undir EY markaðsherferðinni. Fyrirtæki geta nýtt sér viðburði, kynningar og annað það sem átakið bíður upp á. Einnig t.d. sjáum við fyrir okkur að búðir og söfnin geti framleitt og selt merktan varning og minjagripi. �?að er svo margt sem við getum gert ef við stöndum saman.
Okkar langar að miðla einhverju efni á vefnum í samstarfi við áhugasama hér heima og sömuleiðis að standa með þeim sem þegar eru í útgáfu á prentuðu efni. �?á teljum við mikilvægt að skapa jarðveg fyrir virkt viðburðadagatal þar sem á einum stað má nálgast upplýsingar um það sem helst er döfinni á hverjum tíma og við erum spennt að heyra af öllum viðburðum sem eiga sér stað í Eyjum og gætu átt erindi á viðburðadagatalið. Að sama skapi væri gaman að heyra af því hvað Vestmannaeyingar eru að gera. Við erum í stuttu máli sagt opin fyrir öllu og afskaplega spennt og bjartsýn að þróa verkefnið áfram með öllum Vestmannaeyingum.�??
Hvað er framundan?
�??Á næstu misserum mun Vestmannaeyjabær standa fyrir ýmsum viðburðum undir merkjum Ey. Má í því sambandi nefna nýjar bæjarhátíðir á borð við matarhátíðina Gúrmey og götumarkaðinn Gleymmérei. Við ætlum líka að kanna möguleika á því að efla enn frekar margt af því sem þegar er verið að gera á þessum forsendum og horfum þar til að mynda til �?akkargjörðar 23. janúar, átak í tengslum við Meistaramánuð, menningardagskrár um páskana og margt fleira. Verið er að skoða leiðir til að merkja framkvæmdir og vekja athygli á þeim miklu tækifærum sem þeim tengjast og svo margt fleira. �?á verða einnig kynntar nýjar og skemmtilegar gönguleiðir, ætlaðar heimamönnum og gestum Vestmannaeyja, einnig sem hluti af átakinu Ey.�??