Er bjargvættum sínum eilíflega þakklátur
Tuttugasta og fjórða �?tkallsbók �?ttars Sveinssonar sem nú er að koma út heitir �?tkall �?? Reiðarslag í Eyjum og segir frá því þegar belgíski togarinn Pelagus strandaði við Eyjar 1982. Tveir úr áhöfninni fórust og tveir björgunarmenn, Kristján Víkingsson læknir og Hannes �?skarsson björgunarsveitarmaður. �?að jákvæða var að sex úr áhöfninni björguðust en einn þeirra, Bart Gulpen, heimsótti Ísland á dögunum í tilefni útgáfu bókarinnar. Eftir hjartnæma endurfundi með bjargvætti sínum, Guðmundi �?lafssyni í Reykjavík, lá leið þeirra Gulpen og �?ttars til Vestmannaeyja þar sem þeir heimsóttu fólkið á Sjúkrahúsinu sem veitti honum aðhlynningu og komu að björguninni.
Ánægjuleg en erfið heimsókn
Gulpen, sem var einungis 17 ára þegar slysið átti sér stað, var eðlilega hrærður þegar blaðamaður ræddi við hann á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum. �??�?að er mjög ánægjulegt fyrir mig að koma aftur hingað og hitta fólkið sem stóð að björguninni. Á sama tíma hefur þetta verið mjög erfitt en ég hitti t.d. móður Kristjáns læknis sem lést, það tók mikið á. �?að er samt gott að fá tækifæri til að tala um þetta þó það sé erfitt.�??
Ræddi Gulpen einnig um óvænta endurfundi með Guðmundi �?lafssyni sem gerði sér ferð til Íslands frá Noregi í tilefni heimsóknarinnar. �??�?g hafði ekki hugmynd um að hann myndi koma, þetta var mjög óvænt og tilfinningaþrungin stund fyrir mig.�??
�?ó svo Gulpen hafi náð að vinna vel úr áfallinu segir hann heimsóknina og bók �?ttars hafa hjálpað honum að raða síðustu púslunum saman. �??�?að var góð ákvörðun að hjálpa �?ttari við gerð bókarinnar, ég hef fengið tækifæri til að ræða við fólkið sem bjargaði mér, ef það hefði ekki verið fyrir það þá hefði ég án efa látið lífið í kuldanum. �?g er þeim eilíflega þakklátur.�??

Nýjustu fréttir

Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar
Framleging á flugi samþykkt fram í miðjan apríl
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.