Í síðustu viku var haldið hið árlega konukvöld á hárgreiðslustofunni Dízó þar sem strákar og karlar eru líka hjartanlega velkomnir. Baldur frá B pro var mættur á staðinn til að kynna það nýjasta í hártískunni og tækninni á þeim velli og voru þónokkrar konurnar sem löbbuðu út með betri greiðslu heldur en þær mættu með. Mörg tilboð voru í gangi ásamt veitingum og lukkupott, virkilega vel heppnað kvöld hjá stúlkunum á Dízó.