Dagforeldra úrræði er einn af hornsteinum þjónustu við foreldra og börn þeirra. Hér í Vestmannaeyjum höfum við verið afar heppin með það fólk sem valist hefur í þessa þjónustu. �?að þekki ég bæði sem foreldri og síðar sem bæjarstjóri. Hlutverk sveitarfélagsins hvað þessa þjónustu varðar er að veita leyfi til starfseminnar en dagforeldrar eru að öðruleiti sjálfstætt starfandi. �?eir ákveða sjálfir sína gjaldskrá og stjórna starfseminni. Hér í Eyjum eins og víðast eru daggæslugjöldin niðurgreidd af sveitarfélaginu
�?ar til viðbótar hefur Vestmannaeyjabær tekið upp svo kallaðar heimagreiðslur eða ummönnungargreiðslur, ætlaðar foreldrum sem velja að nýta sér ekki dagvistunartilboð.
�?jónusta dagmæðra þarf að þróast í takt við leikskólagjöld
Í dag liggur fyrir að mismunur á kostnaði vegna vistunar barna hjá dagforeldrum annars vegar og á leikskóla hins vegar hefur aukist mikið undanfarið m.a. vegna ákvörðunar ráðsins um að lækka leikskólagjöld. �?að er því orðið brýnt að mæta þessar stöðu og auka framlög Vestmannaeyjabæjar til þessarar þjónustu.
�?ví hefur nú verið tekin ákvörðun um að framlög Vestmannaeyjabæjar vegna dagvistunar í heimahúsum hækki um 50% frá því sem er í dag og að hækkunin taki gildi frá og með 1. janúar 2018.
Mikil aukning á framlögum með þjónustu dagforeldra
Tilgangurinn með þessari hækkun er að létta álögum af nýbökuðum foreldrum vegna dagvistunar í heimahúsum með því að færa greiðslur nær þeim kostnaði sem er fyrir barn á leikskóla þótt vissulega sé gjaldskrá dagforeldra ákveðin af þeim sjálfum án aðkomu Vestmannaeyjabæjar. Niðurgreiðsla fyrir mánaðarklukkustund er nú 4.706 kr fyrir foreldra í sambúð en hækkar í 7.059 kr. Fyrir einstæða foreldra er niðurgreiðslan 5.430 kr en fer í 8.145 kr.
Stór skref tekin
�?jónusta við börn eru fjárfesting til framtíðar. Vestmannaeyjabær hefur á seinustu árum lagt þunga áherslu á að bæta þjónustu við börn og barnafjölskyldur eftir því sem við verður komið. Á seinustu tveimur árum höfum við til að mynda: tekið upp heimagreiðslur, niðurgreitt þjónustu dagmæðra frá 9 mánaða aldri, fjölgað leikskólaplássum, lækkað leikskólagjöld, tekið upp frístundakort og fl. Nú tökum við eitt skrefið í viðbót og aukum framlög með daggæslugjöldum hjá dagforeldrum.
Elliði vignisson greindi frá á heimasíðu sinni.