Lögregla hefur síðan í lok árs 2016 unnið að því í samstarfi við Vestmannaeyjabæ og Neyðarlínuna að komið verði upp löggæslumyndavélum í miðbæ Vestmannaeyja og á Básaskersbryggju þar sem Herjólfur leggur að. �?að er með ánægju sem lögreglan upplýsir að Vestmannaeyjabær hefur nú fest kaup á myndavélabúnaði í þessu skyni sem verður settur upp á næstu vikum. Rafverktakinn Geisli mun sjá um uppsetningu á vélunum í samstarfi við lögreglu. Um löggæslumyndavélar er að ræða og verður allt myndefni vistað af lögreglu og einungis notað vegna lögreglumála. Að mati lögreglu verður öryggi íbúa Vestmannaeyja og gesta þeirra enn betra með löggæslumyndavélum bæði með tilliti til forvarna og uppljóstran brota.