TVÍBURARNIR FRÁ ZÍAM
Greinin hans Ragga
�?g las grein eftir Ragnar �?skarsson áðan, nýt þess reyndar alltaf að lesa greinarnar hans því þær eru vel skrifaðar og oftar en ekki hittir hann naglann á höfðið. �?ví miður fataðist mínum gamla samflokksmanni flugið í þessari grein þegar hann heldur því fram að Sjálfstæðisflokkur og Fyrir Heimaey sé einn og sami flokkurinn. Hvernig er hægt að halda slíku fram þegar forystumenn E og D lista síðasta kjörtímabils hafa sýnt slíka tilburði að samvöxnu tvíburarnir frá Síam hefðu fylltst öfund ef þeir væru ofanjarðar í dag. �?eir hafa stigið dansinn svo taktfast síðustu fjögur ár að unun er að. Tangó aldarinnar. Jafnvel á ögurstundu þegar ákall kom frá samfélaginu um að fá allar staðreyndir varðandi samninginn um Herjólf upp á borðið var E listinn, rekkjunauturinn góði svínbeygður til undirgefni og allt samþykkt mótþróalaust. Og hver er framtíðarspáin varðandi tvíburana góðu? Samflokksmaður Stebba Jónasar, Georg Eiður Arnarson spáir því að hann skelli sér í bólið hjá Elliða strax að kosningum loknum. Og af hverju ekki þegar Stebbi hefur haft svona fiman bólförunaut?
Hvalrekar
Já það hefur margt afrekið verið unnið á kjörtímabilinu og það skyldi ekki lastað. Eins hafa verkefni rekið á fjörur þeirra félaga sem þeir stæra sig ótæpilega af, eins og hingað koma tveggja hvala frá heimalandi tvíburanna frá Zíam, Kína. Í vikunnu er von á kaupsýslumanni frá Reykjavík sem ætlar að opna sundskála í nýjahrauninu þar sem þeir ætla að leigja út sólskinið og selja tæran sjó, allt svona rétt fyrir kosningar svo þeir réttlátu geti gortað af enn einum hvalrekanum.
�?rugg fjármálastjórn
Tvíburarnir berja hvor öðrum á brjóst og tala um fjárhagsleg afrek sín. �?vílík afrek. �?róunarfélagið var flutt frá Strandvegi í Fiskiðjuna. Líklega hefur þurft að finna lendingarstað fyrir það á leiðinni, en félagarnir keyptu húsnæði á annari hæð Miðstöðvarinnar fyrir tugi milljóna og eyddu 25 milljónum í að hanna húsnæðið fyrir setrið. Já, leiðin frá Strandveginum í Fiskiðjuna er löng og einhversstaðar þurfti Setrið að hvílast á leiðinni. Er einhver búinn að gleyma EY? Eyi ég. 14 milljónir fóru til fyrirtækis í Reykjavík til að kynna Vestmannaeyjar fyrir Vestmannaeyingum. Hefur einhver farið á ey nýlega? �?g er stoltur af Eldheimum sem áttu að kosta 450 milljónir. Kostnaðurinn er núna kominn yfir milljarð og verkinu er ekki enn lokið. Fiskiðjuævintýrið er komið hundruði milljóna fram úr áætlun. Er það þetta sem tvíburarnir frá Zíam eiga við með góðri fjármálastjórn?
Ferjan og höfnin
Enn rekur á fjörur tvíburanna frá Zíam. �?að kemur ný ferja í haust sem er auðvitað gott og enginn á sér heitari óskir um velfarnað nýs Herjólfs en sá sem þetta skrifar. En Herjólfur þarf höfn til að sigla í. Hún opnaði fyrir 8 árum síðan. Eruð þið búin að gleyma því að tíu dögum frá opnun hafnarinnar strandaði Herjólfur í fyrsta sinn? Síðustu átta ár hefur komið þungt ákall frá samfélaginu okkar um að höfnin verði lagfærð þannig að hún þjóni þeim tilgangi sem henni var ætlað, að vera heilsárshöfn okkar en ekkert, akkurat ekkert gerst nema þá svikin loforð. Hvar hafið þið alið manninn tvíburar frá Zíam í þessu máli? �?ið hafið hlustað á guð ykkar hjá Vegagerðinni sem þið hafið ákallað allt síðustu kjörtímabil.
Mér líkar vel málflutningur Fyrir Heimaey þegar Landeyjarhöfn er annars vegar, það er auðséð að þeir ætla ekki að gefa ríkisvaldinu neitt eftir vegna hafnarinnar. �?að þarf að taka hana út af óháðum sérfræðingum þannig að hægt verði að lagafæra hana til frambúðar. Tvíburarnir hafa haft 4 ár til að guða á gluggann hjá Vegagerðinni, en ekkert hefur gerst. Sandurinn glottir. �?að sama gera Belgarnir sem belgja út sjóði sína vegna heimsku okkar.
Raggi minn. Hættu að hnýta í þá hjá Fyrir Heimaey að þeir séu Sjálfstæðismenn. Taktu frekar fram skurðarhnífinn og reyndu að aðskilja tvíburana knáu, annars færðu önnur fjögur ár með Sjálfstæðisflokknum þínum.
Kristján Yngvi Karlsson

Nýjustu fréttir

Óstöðugir flutningar valda vandræðum í Eyjum
Séra Kristján segir upp sem vígslubiskup í Skálholti
Arnar Pétursson valdi leikmannahóp fyrir lokaleiki undankeppni EM
Ófært í Þorlákshöfn – Herjólfur bíður átekta fyrir utan höfnina – uppfært
Veðrið gengur niður
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Snælduvitlaust veður í Vestmannaeyjum
Bókin um ESB – Hvað er í pakkanum? 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.