Skrifað undir samning um forathugun á gerð baðlóns
Vestmannaeyjabær og Íslenskar heilsulindir ehf (ÍH), dótturfyrirtæki Blá lónsins, hafa gert með sér samkomulag um samstarf er lítur að fýsileikakönnun er varðar gerð baðlóns, heilsulindar, sjósundsaðstöðu og tengdra mannvirkja í Vestmannaeyjum.
Vestmannaeyjabær hefur um nokkurt skeið unnið að frumkönnun á því hvort nýta megi þá miklu orku sem verður til við byggingu nýrrar sorpbrennslu í bænum, auk varma úr hrauninu, til að styrkja afþreyingu og ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum. Sérstaklega hafa verið skoðaðir möguleikar á manngerðu lóni og heilsulind við Skansinn sem tengd yrðu við hraunið úr Heimaeyjargosinu 1973, auk þess sem þessu samofnar hafa verið reifaðar hugmyndir um gerð sjósundsaðstöðu á Skansinum. Enskt vinnuheiti á þessum hugmyndum er �??LAVASPRING VESTMANNAEYJAR�??, sbr. lýsingu sem Vestmannaeyjabær hefur útbúið.
Samstarfs Vestmannaeyjabæjar og ÍH felur í sér könnun á fýsileika verkefnisins og að skoðað verði með jákvæðum hætti hugsanleg fjárfesting í verkefninu ef niðurstöður fýsileikakönnunar benda til að fjárfesting í því geti orðið hagkvæm.
�??Vestmannaeyjar hafa verið að byggjast hratt upp sem áfangastaður ferðamanna og það er mikið gleðiefni fyrir okkur Eyjamenn þegar stórir fagaðilar í ferðaþjónustu sjá Vestmannaeyjar sem vænlegan kost. Samstarfið við alþjóðlega stórfyrirtækið Merlin hefur þegar skilað verkefni sem valda mun straumhvörfum í ferðaþjónustu og skapa sterkan segul sem draga mun að ferðamenn og auka þjónustu við þá. Allt er það án nokkurar fjárhagslegrar aðkomu Vestmannaeyjabæjar. Við horfum nú til þess að samstarfs við ÍH verði sambærilegt verkefni,�?? sagði Elliði Vignisson bæjarstjóri eftir undirskrift.

Nýjustu fréttir

Lærdómur liðinnar viku
Herjólfur siglir eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis
ÍBV tapaði stórt gegn FH í Kaplakrika
Vilja öflugri dráttarbát og aðkomu ríkisins að fjármögnun
Eyjafólk í Landsleikunum á RÚV
ÍBV sækir FH heim í dag
ÍBV með öruggan sigur á HK
Malbikað á fimm stöðum í næsta veðurglugga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.