Kjörfundur hófst klukkan níu í morgun
Kjörfundur hófst klukkan níu í morgun. Formaður yfirkjörstjórnar Jóhann Pétursson kallaði út samkvæmt hefð fyrir utan kjörstað að kjörfundur væri hafinn.
Kjörstaður er í Barnaskólanum, og eru inngangar um norður- og suðurdyr. Kjörfundi lýkur kl. 22:00 í kvöld. Aðgengi fyrir fatlaða er um norðurdyr.
Bænum er skipt í tvær kjördeildir:
Í 1. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 5. maí 2018 við Ásaveg til og með Hásteinsvegi auk þeirra, sem eru óstaðsettir í hús og þeirra sem búa erlendis og njóta kosningaréttar á Íslandi.
Í 2. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 5. maí 2018 við Hátún til og með Vesturvegi, auk þeirra, sem búa að Hraunbúðum og húsum er bera bæjarnöfn.
Kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskírteini getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði. Aðsetur yfirkjörstjórnar á kjördag verður á kjörstað í Barnaskólanum.
Talning atkvæða verður í sal Barnaskólans og hefst talning að loknum kjörfundi kl. 22:00.

Nýjustu fréttir

Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.