Rólegt yfir makrílveiðum
Mynd/ Óskar Pétur Friðriksson

Rólegt er yfir makrílveiðum þessa dagannna og sagði Sverrir Haraldsson hjá Vinnslustöðinni að það væri lítil veiði þessa daganna, „Kap og ísleifur lönduðu núna fyrir og um helgina bæði um 500 tonnum en svo hefur lítil veiði verið síðustu daga.“ Breki er á Vestfjarðamiðum að fá blandaðan afla en byrjaði túrinn fyrir SV land í karfa. „Það hefur gengið mjög vel hjá Brekamönnum, bæði að fiska og að ná tökum á nýju skipi. Sindri er SA við land, líka í blönduðum afla og gengur ágætlega.“ Hann sagði að  humarveiðarnar hafi gengið illa, „humarafli er lítill en talsvert af meðafla hjá bátunum, mest karfa. Bátarnir eru núna nýfarnir út eftir helgarfrí. En Kap II er fyrir austan land á grálúðu og gengur ágætlega á þeim veiðum. Þeir voru að landa í dag og fara út aftur í kvöld.“

 

10% af heildarýsukvótanum
Arnar Richardsson hjá Berg-Huginn sagði í samtali við Eyjafréttir að júlímánuður hafi verið ágætur ýsuafli hjá Eyjunum, „þær komu með um 430 tonn af ýsu að landi.“ Hann ssagði að Vestmannaey VE og Bergey VE hafi nú veitt um 3.000 tonn af ýsu það sem af er yfirstandandi fiskveiðiári, „en það eru hátt í 10% af heildarýsukvótanum.“

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.