Hrafn Sævaldsson nýr formaður Farsæls
Vestmannaeyjahöfn.
Hrafn Sævaldsson

Aðalfundur Farsæls félags smábátaeigenda í Vestmannaeyjum fór fram á dögunum. Þar kusu félagar sér nýjan formann, Hrafn Sævaldsson. Hann tekur við af Jóel Andersen, formanni til tuttugu ára.

Í upphafi fundar minntust menn kærs félaga Bergvins Oddssonar, sem lést þann 22. september sl. Beddi á Glófaxa, eins og hann var ætíð kallaður, var félagi í Farsæli og var að leggja lokahönd á nýjan 12 tonna bát Glófaxa VE 300.

„Jóel Andersen, sem verið hefur formaður Farsæls í tuttugu ár, tilkynnti að hann óskaði ekki eftir endurkjöri. Hrafn Sævaldsson var kjörinn formaður með lófataki. Hrafn þakkaði Jóel fyrir mikið og gott starf í þágu trillukarla í Vestmannaeyjum. Hægt og bítandi hefur fjölgað í félaginu á undangengnum árum og félagið því verið að styrkjast.” Segir í fundargerð Farsæls.

Strandveiðar voru mest til umræðu á fundinum, enda flestir félagsmenn sem stunda þær. „Smábátasjómenn lýstu óánægju sinni með skerðingu réttinda sem orðið hefðu á milli áranna 2018 og 2017, en þá fækkaði leyfilegum veiðidögum um 20, úr 68 dögum árið 2017 niður í 48 daga árið 2018. Bátar í Eyjum þurftu að stoppa veiðar áður en almanaksmánuði var lokið á veiðitímabilinu og því er um afturför að ræða fyrir smábátasjómenn á svæði D að þessu leyti.”

Félagsmenn Farsæls leggja áherslu á að strandveiðar fái að hefjast fyrr enda er fiskgengd við Eyjar hvað mest í apríl. „Ýmislegt gott hefur áunnist en stöðugt þarf að vinna í því að fjölga strandveiðidögum og lengja þarf tímabilið.”

 

 

Nýjustu fréttir

Frábær árangur FÍV – Eyjakonfekt til Tromsø
Íþróttamaður mánaðarins – Helgi Ólafsson
Baldur á leið til Eyja
Ekki brotna! Fræðsla og forvarnir um beinheilsu
Margrét aðstoðar Miðflokkinn
Herrakvöld fótboltans
Fundur bæjarstjórnar í beinni
Samgöngur og sannindi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.