Fyrstar til að leggja meistara Fram

Eyjastúlkur sóttu heim ósigraða Íslandsmeistara Fram í Olísdeild-kvenna í dag í hörku viðureign.

Það var ÍBV sem byrjaði leikinn betur og eftir tæpar tíu mínútur var staðan orðin 2-6 ÍBV í vil. Fram átti þá góðan kafla eftir að hafa tekið leikhlé og minnkaði muninn niður í tvö mörk.

Illa gekk þó meisturunum að jafna leikinn og í hvert sinn sem þær nálguðust Eyjastúlkur svöruðu þær um hæl. Staðan í hálfleik Fram 15-16 ÍBV.

Framstúlkur komust þá loks yfir í upphafi síðari hálfleiks 20-19 en ÍBV stúlkur svöruðu fljótt fyrir sig og komust í 20-22. Nær komust heimamenn gestunum ekki og lokatölur urðu Fram 23 – ÍBV 27.

Guðný Jenný Ásmundsdóttir átti góðan leik og varði 20 skot í marki ÍBV. Markahæst í liði ÍBV var Grena Kavaliauskaite með átta mörk. Aðrir markaskorarar voru Arna Sif Pálsdóttir (8/2), Ester Óskarsdóttir (4), Sandra Dís Sigurðardóttir (3), Harpa Valey Gylfadóttir (1), Sunna Jónsdóttir (1) og Kristrún Hlynsdóttir (1).

Með sigrinum komast stelpurnar upp í þriðja sæti deildarinnar með sjö stig. Næsti leikur er í Eyjum gegn Selfossi þriðjudaginn 30. október næstkomandi kl. 19.30.

[add_single_eventon id=”61533″ show_excerpt=”no” ev_uxval=”3″ ]

Nýjustu fréttir

Óhagsætt sjólag þegar nær dregur helgi
Hvað kostuðu þjóðlendukröfur ríkisins í Eyjum?
Bæjarráð ræddi stöðu dýpkunarmála í Landeyjahöfn
Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi
Undankeppni Stíls á morgun
Versnandi afkoma bæjarins
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja
Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.