Kvenfélagið Líkn farið af stað með sína árlegu jólakortasölu
Í ár fengum Líknarkonur mynd eftir Brynhildi Friðriksdóttur til þess að prýða listamannakortið og tvær myndir eftir Jóhannes Jensson til þess að vera á eyjakortunum.

Nú er Kvenfélagið Líkn farið af stað með sína árlegu jólakortasölu og í ár fengum við mynd eftir Brynhildi Friðriksdóttur  til þess að prýða listamannakortin okkar og tvær myndir eftir Jóhannes Jensson til þess að vera á eyjakortunum okkar. Í ár er listamannakortið ekki með neinum texta svo hægt er að nota það sem tækifæriskort allt árið um kring. Einnig fórum við í endurnýtingu á eldri jólakortum frá okkur og létum klippa þau í einföld merkispjöld með fallegum myndum frá eyjum sem hægt er að nota allt árið um kring.  Svo erum við auðvitað með hinu hefðbundu jólakort líka. Kortin frá Líkn eru til sölu i Vöruval, Sjúkrahúsinu og Kletti og allur ágóðinn rennur í sjúkrahússjóð Líknar. Vonumst við eftir góðum viðtökum.

Nýjustu fréttir

Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Bæjarráð samþykkir að selja hlut í Landsbankanum
Lokaumferðin: ÍBV fær topplið Vals í heimsókn
„Meira af loðnu en maður hefur séð í langan tíma“
Eyjalistinn boðar til félagsfundar
Góð aðsókn á fundi Eyþórs
Karla- og kvennalið ÍBV töpuðu í Lengjubikarnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.