Áskorun til stjórnvalda vegna málefna Hafró

Árangur sá er náðst hefur í fiskveiðistjórnun á Íslandsmiðum grundvallast á rannsóknum. Án þeirra myndu menn renna blint í sjóinn, í bókstaflegri merkingu. Margir stofnar við Ísland eru nýttir á sjálfbæran hátt. Stærri fiskistofnar leiða til þess að hægara verður að veiða fiskinn og veiðarnar verða umhverfisvænni. Víða um heim líta menn til reynslu Íslendinga af stjórn fiskveiða, sem byggst hefur á vísindalegri nálgun. Þar hefur Hafrannsóknastofnun verið í forystu- og lykilhlutverki og Íslendingar ættu að vera stoltir af framlagi hennar. Að hlúa að stofnuninni er því bæði nauðsyn og skylda.

Nú hafa verið boðuð verulega skert fjárframlög til Hafrannsóknastofnunar. Það er óskiljanlegt að stjórnvöld hyggist draga svo máttinn úr stofnuninni að henni verði í raun meinað að sinna þeim grundvallarrannsóknum, sem sjósókn Íslendinga byggist á. Skerðing fjármuna vekur ekki síst furðu í ljósi þess að íslenskur sjávarútvegur í heild sinni greiðir tugi milljarða til hins opinbera á ári hverju. Veiðigjaldið, eitt og sér, nam hátt í 11,5 milljörðum króna í fyrra. Lögum samkvæmt er gjaldinu, meðal annars, ætlað að standa undir kostnaði ríkisins við rannsóknir, stjórn, eftirlit og umsjón með fiskveiðum og fiskvinnslu. Það er miður að löggjafinn fylgi ekki þeirri reglu sem hann sjálfur hefur sett.

Á sérstökum hátíðarfundi Alþingis í sumar var samþykkt tillaga til þingsályktunar um að láta smíða hafrannsóknarskip. Segir svo í greinargerð með ályktuninni: „Meginforsenda þess að Íslendingar geti tekist á við þær breytingar sem eiga sér nú stað á umhverfi hafsins og vistkerfi þess eru viðamiklar haf- og fiskirannsóknir, þ.m.t. reglulegar stofnmælingar á helstu nytjastofnum. Það er nauðsynlegt til að nýtingin sé sjálfbær og hún byggð á bestu fáanlegu þekkingu. Íslendingar þurfa að ráða yfir góðum og vel búnum rannsóknaskipum sem geta sinnt haf- og umhverfisrannsóknum, eru vel búin til bergmálsmælinga á uppsjávarstofnum, útbúin veiðarfærum til rannsókna á stofnum í upp-, mið- og botnsjó auk þess að geta rannsakað umhverfi með myndavélum og fjölgeislamæli. Þá eru rannsóknaskipin mikilvægur vettvangur kennslu og rannsókna fyrir háskólanema og til uppfræðslu á öðrum skólastigum.“ Undir þetta skal tekið.

Það er krafa þeirra er undir þessa áskorun rita að stjórnvöld endurskoði hið fyrsta fyrirhugaðan niðurskurð á fjárframlagi til Hafrannsóknastofnunar. Sú ákvörðum er skammsýni. Það eru miklu meiri heildarhagsmunir fólgnir í því að styðja við og efla rannsóknir en að stefna þeim í voða. Þannig rísum við undir þeirri ábyrgð sem okkur er falin í umgengni við sjóinn.

Sjómannasamband Íslands
VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna
Félag skipstjórnarmanna
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland

Foreldrar

Laura Vähätalo og Orri Arnórsson
76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn

Foreldrar

Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson
Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon
Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson
462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.
Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.

Foreldrar

Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.
Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir
Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson
F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir
Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.
E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes

Foreldrar

Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson
Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Todor Hristov og Marta Möller
Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík

Foreldrar

Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson
Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani
IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi

Foreldrar

Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason
tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir
nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson
jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir
Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.