Bergey VE kom með fullfermi eða 70 tonn til Seyðisfjarðar síðast liðið mánudagskvöld. Uppistaða aflans var ýsa sem fékkst í Litladýpi og Berufjarðarálnum. Þessi veiðiferð markar tímamót í sögu skipsins því með henni fór aflaverðmæti þess yfir tíu milljarða múrinn en afli skipsins frá því það kom nýtt til landsins í ágústmánuði 2007 er 39.050 tonn. Það er útgerðarafélagið Bergur-Huginn, dótturfélag Síldarvinnslunnar, sem gerir Bergey út.

Það var tekið vel á móti áhöfninni á Bergey við komuna til Seyðisfjarðar í gærkvöldi og hennar beið dýrindis terta í tilefni tímamótanna. Heimasíðan sló á þráðinn til Jóns Valgeirssonar skipstjóra og spurði hverju hann vildi þakka árangurinn. „Það er einfalt, ég þakka árangurinn góðu skipi, góðri útgerð og góðri áhöfn. Það skiptir miklu máli að hafa góðan mannskap ef árangur á að nást og á Bergey hefur verið lítil hreyfing á mannskapnum. Menn virðast vera ánægðir hér um borð. Það hefur alla tíð gengið vel að fiska á skipið og eftir að Síldarvinnslan festi kaup á útgerðarfélaginu hefur meiri kvóti verið til ráðstöfunar og það munar heilmiklu. Allt frá upphafi hefur mikil áhersla verið lögð á ýsuveiði og við höfum mest fiskað við Eyjar, út af suðurströndinni og fyrir austan. Síðustu árin höfum við lítið farið vestur fyrir land. Útgerðin gerir út tvö skip,systurskipin Bergey og Vestmannaey, og sömu sögu er að segja af Vestmannaey; skipið kom nýtt til landsins í apríl 2007 og náði tíu milljarða markinu sl. sumar. Hér um borð eru menn mjög ánægðir með að hafa náð þessu tíu milljarða marki,“ segir Jón.

Jón Valgeirsson tók við skipstjórn á Bergey um áramótin 2013-2014 en áður hafði Sigurður Guðbjörn Sigurjónsson verið skipstjóri. „Ég tók við ákaflega góðu búi,“ segir Jón. Þá sagði Jón einnig að spennandi tímar væru framundan því útgerðin væri að láta smíða skip í Noregi sem myndu leysa núverandi Bergey og Vestmannaey af hólmi og skipin yrðu væntanlega afhent í sumar.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.