Svava Tara er nýr eigandi Sölku
Bertha Johansen fyrrum eignandi á síðustu vaktinni og Svava Tara Ólafsdóttir nýr eigandi verslunarinnar Sölku.

Svava Tara Ólafsdóttir er nýr eigandi verslunarinnar Sölku. Bertha Johansen opnaði verslunina fyrir um átta árum síðan og er nú komið að kaflaskiptum. Blaðamaður hitti þær í gær en þá var Bertha að standa sína síðustu vakt í Sölku og Svava Tara að fara taka við lyklunum eftir lokun. Salka, undir stjórn Svövu Töru opnar á morgun og er hún spennt fyrir komandi tímum og telur Bertha þetta vera gæfuspor fyrir fyrirtækið.

„Nýjum tímum fylgja nýjar áskoranir og ný tækifæri og nú stend ég frammi fyrir nýjum tímum þegar ég sel Sölku. Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að taka þátt í yndislegu samfélagi okkar Eyjamanna í hart nær tvo áratugi og Vestmannaeyjar verða alltaf „heim“ fyrir mér. Ég er ekki hvað síst þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast svo mörgu góðu fólki og þá ekki síst þau 14 ár sem ég kenndi við FÍV. Þannig komst ég hratt og örugglega inn í þetta magnaða samfélag sem Vestmannaeyjar eru. Þar ofan á fékk ég svo að kynnast fólki enn betur og fá enn dýpri sýn á Eyjuna og kynnst enn fjölbreyttari hópi fólks í þau 8 ár sem ég rak verslunina Sölku,“ sagði Bertha.

Berta vildi nota tækifærið og þakka einnig fyrir sig,  „ég vil þakka því góða fólki, fjölskyldu, vinum, starfsfólki og viðskiptavinum sem með einum eða öðrum hætti hafa gert það að verkum að Salka hefur fengið að blómstra og dafna. Ég er líka einstaklega stolt af Svövu Töru, nýjum eiganda Sölku, að sýna það þrek og þor sem ég þekki Eyjamenn af og leggja út í þennan rekstur. Það er í mínum huga holt og gott bæði fyrir markaðinn í heild hér í Vestmannaeyjum sem og Sölku sem fyrirtæki. Þjónustan í Eyjum er bara eins og keðja. Það munar um hvern hlekk. Mér líður dáldið eins og að barnið mitt hún Salka sé að fá nýtt foreldri og engum treysti ég betur en Svövu Töru til að taka við henni. Ég er fullviss um að í höndum hennar þá á rekstur Sölku eftir að vaxa og verða enn betri. Að lokum hvet ég Eyjamenn til að halda áfram að sýna djörfung og þor. Væl, vol og sjálfsvorkunn hefur aldrei verið meðal Eyjamanna og í þá gryfju megum við ekki falla. Eyjarnar eru frábærar og við eigum ekki að hika við að segja frá því. Ég er bjartsýn á framhald Eyjanna og hlakka til að halda áfram að njóta samveru með Eyjamönnum um ókomna tíð,“ sagði Berta að endingu.

Nýjir tímar
Svava Tara er mjög spennt fyrir komandi tímum, „ég er virkilega spennt að takast á við þetta verkefni, Bertha hefur komið mér vel inní þetta og ég tek við góðu búi,“ sagði Svava Tara og vildi í leiðinni bjóða gamla sem og nýja viðskiptavini hjartanlega velkomna í Sölku.

Nýjustu fréttir

Karlar hvattir til að sýna handverk
Guðbrandur Einarsson segir af sér þingmennsku
Mikill áhugi á Eyjagöngum
Saltfisksala hjá meistaraflokkum ÍBV
ÍBV með mikilvægan sigur á ÍR
Kveikjum neistann: Jákvæðar vísbendingar
Hvattning til Eyjamanna
Heilsuefling starfsfólks fær aukið vægi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.