Á morgun, þriðjudag, kemur enn ein lægðin upp að landinu með hvassviðri eða stormi sunnan og suðvestan til og vætusömu veðri sunnan- og vestanlands. Hiti verður einnig svipaður eða upp í um 13 stig fyrir norðan.
Í samantekt veðurfræðings Veðurstofu Íslands um veðrið fram undan segir að fram að helgi sé útlit fyrir áframhaldandi mildar suðlægar áttir með rigningu sunnan og vestan til en þurrt verði fyrir norðan. Um páskahelgina lítur út fyrir kólnandi veður og gæti úrkoman farið úr rigningu í slyddu, en ekki er útlit fyrir að veður hafi áhrif á ferðalög yfir páskana, a.m.k ekki samkvæmt nýjustu spám.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.