Þarf að endurbyggja hafnarkantinn
Bryggjuthil_2024-03-12_11-54-19_Gelp_ehf_min
Líkt og sjá má eu bryggjuþilin mjög illa farin á Gjábakkakanti. Aðsend mynd

Líkt og greint var frá fyrr í þessum mánuði hér á Eyjar.net varð sig á jarðveginum undir Gjábakkabryggju sem liggur norðan við Ísfell og Hampiðjuna.

Nú er komið í ljós að bryggjuþilin eru illa farin og því þarf að takmarka hvaða skip geta legið þar. Þetta segir í tilkynningu á facebook-síðu Vestmannaeyjahafnar.

„Ekki er hægt að gera við kantinn heldur þarf að endurbyggja hann. Eins og gefur að skilja eykur þetta plássleysið innan hafnar. Sjómenn og útgerðir hér í Vestmannaeyjum hafa sýnt plássleysinu mikla þolinmæði á undanförnum árum og treystum við á að svo verði áfram.
Búið er að girða svæðið af og ræða við þá sem eru með atvinnustarfsemi á svæðinu. Biðjum við fólk að virða lokanir.“ segir jafnframt í tilkynningunni.

https://eyjar.net/tjon-a-gjabakka-bryggju/

Nýjustu fréttir

Fyrirliði ÍBV spennt fyrir komandi tímabili í Bestu deildinni
Þungt tap ÍBV gegn KR
Stelpurnar klárar í slaginn
Jóna Heiða með sýningu í Sagnheimum
Eldsneytisvandi í Eyjum ratar á Alþingi
Spurt og svarað: Anton Örn frá Eyjalistanum
Gröfuþjónusta Brinks lægstbjóðandi í gatnagerð og fráveitu í Miðgerði
Sumarið heilsar með stórleik
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.