Vestmannaeyjahlaupið verður 7. sept
Frá Vestmannaeyjahlaupinu.

Vestmannaeyjahlaupið verður haldið laugardaginn 7. september og verður boðið upp á 5 km, 10 km og 21 km hlaupaleiðir. Vestmannaeyjahlaupið er þekkt fyrir mikilfenglega hlaupaleið og skemmtilegt andrúmsloft og var Vestmannaeyjahlaupið kosið götuhlaup ársins 2016 og 2017 af lesendum hlaup.is.

Tímasetningar
5 km og 10 km hlaupið hefst við Íþróttamiðstöðina kl. 13 en hálfmaraþonið hefst kl. 12:30. Sameiginleg upphitun fyrir 5 km og 10 km hlaupið hefst kl. 12:35.

Hlaupaleiðin
Allar hlaupaleiðir á einu korti.

Þátttökugjöld og skráning
Forskráning er á hlaup.is. Forskráningu lýkur kl. 20:00 föstudaginn 6. september. Ekki verður tekið á móti skráningum á hlaupdag . Keppnisnúmer og gögn eru afhent milli kl. 18-20 föstudagskvöldið 6. september eða um morguninn fyrir hlaup.

Eitt þátttökugjald 3.000 kr er í hlaupið, óháð vegalengd. Hlauparar fæddir 2004 og síðar fá frítt í hlaupið.

Frítt er í Herjólf fyrir einstaklinga (ekki bíla) fram og til baka (200 frímiðar í boði). Ferðirnar fyrir hlaupara eru kl. 10:45 frá Landeyjarhöfn og kl. 18:15 frá Vestmannaeyjum. Listi með nöfnum þeirra sem panta Herjólfsferð verður í Landeyjarhöfn og í Vestmannaeyjum þannig að nóg er að sýna skilríki til að komast í ferðina.

Verðlaun
Veitt eru verðlaun fyrir fyrsta karl og fyrstu konu í hverri vegalengd. Einnig verða veitt glæsileg útdráttarverðlaun. Allir hlauparar fá minjagrip sem þátttökuviðurkenningu.

Búningsaðstaða
Íþróttahúsið verður opið fyrir og eftir hlaup og hægt er að fara í sund þar og er það innifalið í gjaldinu.

Nánari upplýsingar
Þú getur líka fylgst með hlaupinu á Facebook og á vef hlaupsins, www.vestmannaeyjahlaup.is.
Allur ágóði af hlaupinu rennur til góðgerðarmála.
Upplýsingar veitir Sigmar Þröstur Óskarsson í síma 895-3339 eða Magnús 897-1110.

Hlaup.is á Facebook

Viltu fylgjast með hlaup.is á Facebook ? Settu “Like” á Facebook síðu hlaup.is.

Nýjustu fréttir

„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.