Margir hafa eflaust furðað sig á því hvers vegna Herjólfur III siglir nú milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar á meðan nýja ferjan liggur bundin við bryggju. Aðspurður hafði Guðbjartur Ellert Jónsson þetta að segja:
“Þegar við vorum komin í þá stöðu að þurfa að setja gamla undir, vegna þess að höfnin í Þorlákshöfn er ekki klár til að taka á móti nýja skipinu. Var strax ákveðið nota tækifærið að fá framleiðandann til að laga og yfirfara þau atriði sem þarf. Þar á meðal er bilun í segulloka í opnuna á hlera og einnig þurfti að stilla og uppfæra rafhlöðubúnað. Þá er í undirbúningi að stilla stýrisbúnað. Áætlað er að þessu ljúki á næstu dögum,”
“Framleiðendurnig vakta sinn búnað vel og leggja metnað í að hafa hann í sem bestu lagi. Sumarið hefur gegnið ótrúlega vel og fá vandamál komið upp eins og eðlilegt er í nýjum skipum.”
Herjólfur III siglir eftir áætlun þar til sá nýi er aftur klár.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst