Halla Tómasdóttir kosin forseti
Halla Tómasdóttir

Á tíunda tímanum í morgun var loks búið að telja upp úr kjörkössunum í forsetakosningunum. Með þeim er ljóst að Halla Tómasdóttir verður sjöundi forseti lýðveldisins.

Halla hlaut 34,3 prósent atkvæða, 9,1 prósentustigi meira en Katrín Jakobsdóttir sem varð önnur með 25,2 prósent atkvæða. Halla Hrund Logadóttir var þriðja og hlaut 15,5 prósent á landsvísu.

Í Suðurkjördæmi var kjörsókn 79,5 prósent. Þar fékk Halla Tómasdóttir 35.26% atkvæða. Önnur var Halla Hrund Logadóttir með 19,13% og Katrín Jakbobsdóttir þar skammt á eftir með 18,64%.

Kjörsókn í Vestmannaeyjum var með besta móti, eða 82,4%. Til samanburðar var kjörsóknin fyrir fjórum árum 66,3%. Fara þarf aftur til ársins 2018 til að finna betri kjörsókn í Eyjum, en þá var hlutfallið 83,2% í bæjarstjórnarkosningum.

https://eyjar.net/mjog-god-kjorsokn-i-eyjum/

Nýjustu fréttir

Birgir Nielsen um tónlistina og lífið á skólabekk  
Ráðið segir tafir sýna mikilvægi betri undirbúnings
Opnunarhátíð Sea Life – myndasyrpa
Ísfélagið á vörusýningu á Englandi
Perlað fyrir von og samstöðu í Höllinni í dag
ÍBV sigraði Stjörnuna í Eyjum
Könnun sýnir breytt fylgi flokka í Eyjum
Ræddu kvartanir og þjónustu við fulltrúa Terra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.