Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til leitar
Kallað hefur verið eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar. Eyjar.net/TMS

Undir morgun hóf lögregla leit af Helga Ingimar Þórðarsyni sem er 21 árs gestur á Þjóðhátíð.

Leit stendur enn yfir og hefur þyrla Landhelgisgæslunnar verið kölluð út til aðstoðar við hana, en þetta staðfesti Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar í samtali við fréttastofu Vísis. Björgunarbáturinn Þór var kallaður til leitar í hádeginu.

Helgi er 192 cm á hæð og sást síðast klæddur í svartar buxur, svarta hettupeysu og dökkgrænann bomberjakka. Síðast er vitað um ferðir Helga við Herjólfsdal síðastliðna nótt.
Þau sem vita um ferðir Helga eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögreglu í síma 112.

Nýjustu fréttir

Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona á RÚV 
Hekla bætti eigið met og varð efst kvenna
Vilja taka upp daggjald í Frístund
Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.