Hvatningaverðlaun fræðsluráðs afhent
27. maí, 2024

Í síðustu voru hvatningarverðlaun fræðsluráðs afhent í fimmta sinn í Einarsstofu. Markmiðið með verðlaununum er að vekja athygli á því sem vel er gert í fræðslustarfi.

Verðlaunin eru hugsuð sem hrós og hvatning til þeirra sem sýnt hafa framúrskarandi vinnu og er einnig staðfesting á því að viðkomandi er fyrirmynd á því sviði sem viðurkenningin nær til.

Ellefu tilnefningar til hvatningarverðlauna fræðsluráðs bárust þetta árið, segir í tilkynningu á vef Vestmannaeyjabæjar. Fræðsluráð valdi að venju úr þeim tilnefningum og veitti eftirtöldum aðilum sérstaka viðurkenningu:

Sigurlína Sigurjónsdóttir, ritari í Barnaskólanum.

Sigurlína hefur oftar en einu sinni verið kölluð hjarta skólans, bæði af nemendum og starfsfólki. Hún er einstök í sínu starfi. Tekur á móti öllum eins, hvort sem það eru nemendur, starfsmenn eða foreldrar. Hún er vinnusöm og bóngóð, gengur 100% í allt sem hún er beðin um og oft meira til. Það má segja að hún haldi vel utan um skólann og skólinn væri mikið fátækari án hennar.

Risið í Barnaskólanum

Í Risinu í Barnaskólanum má finna starfsfólk sem vinnur af mikilli natni með nemendum sem þurfa námsaðlögun. Þar sem áhersla er að nemendum líði vel og sýni námi sínu áhuga. Starfsfólkið í Risinu sinnir einstaklingsþörfum nemendanna vel með það að markmiði að ná því besta úr þeim og það hafa þau sýnt í starfi sínu. Hópurinn er skipaður af góðu starfsfólki sem hjálpast að við að láta skóladaginn ganga sem best fyrir alla.

Samstarf milli leikskólans Kirkjugerðis, Bjargsins og Hugarró

Samstarf Kirkjugerðis og Hraunbúða hefur lengi verið í gangi en í vetur var markvisst samstarf með Bjarginu og Hugarró. Í hverri viku fer hópur af nemendum á eldri deildum Kirkjugerðis í heimsókn á Hraunbúðir, annars vegar í Bjargið og hins vegar að hitta heimilisfólk í Hugarró. Þar hitta nemendur eldri borgara samfélagsins, föndra með þeim, leika við þau, spjalla og syngja o.fl. Verkefnið er farsælt, eflir félagsþroska barna og fullorðna og kennir nemendum samfélagslega ábyrgð.

Samningar vegna styrkja úr þróunarsjóði leik-, grunn- og tónlistarskóla voru einnig undirritaðir við þetta tilefni. Markmiðið með Þróunarsjóði leik-, grunn- og tónlistarskóla er að stuðla að þróunar- og nýsköpunarstarfi í skólunum. Fimm verkefni hlutu styrk úr þróunarsjóði leik-, grunn- og tónlistarskóla þetta árið og nemur heildarupphæð styrkja kr. 4.350.000. Eftirtalin verkefni hljóta styrk:

Heimasíða fyrir heimilisfræði í GRV (Barnaskóla). Markmiðið með verkefninu er að setja allt sem tengist heimilisfræði sem kennt er í GRV á sama stað. Þar verða sett inn myndbönd, myndir og orðaforði til að nemendur eigi auðveldara með að sækja sér fróðleik, skoða betur það sem þeir vilja bæta sig í og jafnvel æfa sig heima. Þannig auðveldar það nemendum aðgengi að upplýsingum og ýtir undir sjálfstæði þeirra í vinnubrögðum. Harpa Hauksdóttir stendur að verkefninu.

Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, Réttindaskóli UNICEF. Markmið verkefnisins er að auka þekkingu á réttindum barna. Börn og fullorðnir þurfa að þekkja Barnasáttmálann og geta tengt hann við skólastarf. Einnig verður unnið með aukið lýðræði til að auka og efla tækifæri barna til þess að hafa áhrif á öll málefni sem þau varða. Börnin fá tækifæri til að læra um eigin réttindi og réttindi annara barna, þvert á námsfög. Fyrir hönd leikskólans Kirkjugerðis munu Eyja Bryngeirsdóttir, Halldóra Björk Halldórsdóttir og Ásta Björk Guðnadóttir standa að verkefninu.

Lausnahringurinn. Markmið verkefnisins er að innleiða Lausnahringinn frá fimm ára deild og upp skólagönguna í grunnskólanum, fræða samstarfsfólk og börn í skólanum, útbúa áætlun og verkefni sem til þarf svo hægt sé að vinna markvisst með efni verkefnisins. Linda Óskarsdóttir, Fanndís Ómarsdóttir, Ásta Lilja Gunnarsdóttir og Sigríður Sigmarsdóttir standa að verkefninu.

Lestrarhestarnir er verkefni þar sem markmiðið er að hjálpa nemendum sem hafa átt í erfiðleikum með lestur að uppgötva lestraráhuga sinn og bjóða þeim upp á óhefðbundna leið til að nálgast lesturinn. Unnin verða lestrarverkefni tengd hestum. Nina Anna Dau stendur að verkefninu.

Stigskipt nám í stærðfræði í anda þróunarverkefnisins Kveikjum neistann – leiðarljós í stærðfræði á mið- og unglingastigi. Markmiðið er að nemendur fái áskoranir við hæfi og nái að festa grunnþættina betur í sessi. Berglind Þórðardóttir stendur að verkefninu.

Vestmannaeyjabær óskar verðlauna- og styrkhöfum innilega til hamingju. Verkefnin bera vott um það góða starf sem er í skólum sveitarfélagsins og þá frábæru kennara sem eru tilbúnir að taka frumkvæðið og leggja sitt að mörkum til að gera gott skólastarf enn betra, segir að endingu í tilkynningunni.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.