Árgangamót ÍBV verði haldið 9. nóv. Síðasti dagur til að skrá lið er þriðjudaginn 5. nóvember. Lokahóf mótsins verður sama kvöld í Kiwanis og verður þar matur, ræðumaður kvöldsins sem og trúbador. Lokahófið er öllum opið.
Mótafyrirkomulag:
Leikið er í 5 manna bolta og er frjáls fjöldi varamanna. Hver leikur er 2×6 mínútur.
Í karlaflokki keppa 16 lið í fjórum riðlum og komast tvö efstu liðin í 8 liða úrslit.
Í kvennaflokki keppa 8 lið í tveimur riðlum og komast tvö efstu liðin í undanúrslit.
*Með fyrirvara um fjölda skráðra liða. Ath. að mögulegt er að sameina árganga ef þarf.
Mótið er 30+ eða fyrir þá sem fæddir eru ´89 og fyrr.
Verðskrá:
Mótsgjald 3.000 kr. á haus.
Uppskeruhátíð 4.000 kr. Uppskeruhátíðin er opin öllum meðan húsrúm leyfir.
Skráning fer frá á knattspyrna@ibv.is
Lokahóf mótsins verður sama kvöld í Kiwanis og verður þar matur, ræðumaður kvöldsins sem og trúbador. Lokahófið er öllum opið.
https://www.facebook.com/events/546314152805366/




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.