Vitlaust veður en ágætis reytingur
Bergur_vestmannaey_naer_24_IMG_4466
Vestmannaey VE og Bergur VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE landaði 60 tonnum af þorski í Neskaupstað í gær og systurskipið Bergur VE mun landa þar fullfermi í dag.

Rætt var við Birgi Þór Sverrisson skipstjóra á Vestmannaey í gær – á vef Síldarvinnslunnar – og hann spurður um veður og aflabrögð. ,,Við fengum þennan afla á Breiðdalsgrunni og í Hvalbakshalli í vitlaustu veðri, Þarna fékkst þorskur, þokkalegur millifiskur og það var ágætis reytingur. Við fórum svo á Gerpisflak og Tangaflak að leita að ýsu en þar var heldur lítið að hafa. Við vorum svo kallaðir inn til löndunar vegna þess að það vantaði fisk til vinnslu. Við förum út strax að löndun lokinni og gerum ráð fyrir heldur leiðinlegu veðri fram á fimmtudag en þá ætti að vera komin blíða. Ætli við reynum ekki fyrst fyrir okkur á Glettinganesflakinu. Það er gert ráð fyrir að við löndum aftur í Neskaupstað á fimmtudaginn,” segir Birgir Þór.

Bergur kom til hafnar í Neskaupstað í morgun og hafði heimasíða SVN samband við Ragnar Waage Pálmason skipstjóra. ,,Við vorum í ágætis veiði sunnarlega í Hvalbakshallinu og í Berufjarðarálnum. Þar fékkst þorskur. Síðan enduðum við á Gula teppinu í leit að ýsu en þar fengum við blandaðan afla, ýsu og þorsk. Veðrið var ekki upp á það besta en verst var það á leiðinni frá Eyjum og austur fyrir land. Við fórum frá Eyjum um hádegi á föstudag en vorum ekki komnir á miðin fyrr en á laugardagskvöld. Það tekur venjulega 20 tíma að sigla þessa leið en þarna tók það okkur 32 tíma að sigla á móti veðrinu. Við munum landa í Neskaupstað í dag og höldum síðan til veiða á ný seinni partinn á morgun,” segir Ragnar Waage.

Nýjustu fréttir

Laxey og AKVA group semja um nýja seiðastöð
Hitað upp fyrir leik ÍBV og Hauka
Spurt og svarað: Sæunn frá Miðflokknum
Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.