Kappkostum að sinna verkum af kostgæfni
Myndarlegur hópur hjá Eyjablikki.

Eyjablikk ehf. er blikk og stálsmiðja sem hefur verið starfrækt um áraraðir. Fyrirtækið þjónustar sjávarútvegsfyrirtæki, verktaka sem og einstaklinga með allt milli himins og jarðar. Fjölbreytni verkefna hefur verið með ólíkindum í gegnum árin. Má þar nefna loftræsikerfi, einangrun og klæðningar á hita- og frystilögnum, flasningar, rústfrí smíði, álsmíði, lagning koparþaka, smíði á handriðum ásamt smíði á allra handa færiböndum og körum fyrir sjávarútveginn.

Þjónusta við einstaklinga hér í Eyjum er líka stór þáttur í starfsemi fyrirtækisins. „,Við hjá Eyjablikk höfum kappkostað við að sinna þeim verkum sem okkur hefur verið treyst fyrir af kostgæfni og með bros á vör, því að það skilar sér í ánægðum viðskiptavinum sem leita aftur og aftur til okkar með sínar þarfir,“ segir Stefán Lúðvíksson, eigandi.

Til dæmis framleiðir Eyjablikk flokkunarílát fyrir fyrirtæki og stofnanir. „Auðvitað henta þær líka fyrir heimili, tunnurnar koma í mörgun útfærslum og litum og eru einstaklega fallegar. Hægt er að fá þær með merkingum sem henta hverjum og einum.” segir Stefán að endingu.

 

Nýjustu fréttir

Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Þóra Guðný og Sveinn flutt í nýja húsið
ÍBV mætir KR á Meistaravöllum í kvöld
Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.