Natalie Viggiano og Vicente Valor best
Myndarlegur hópur. Þau sem þóttu skara fram úr í sumar. Mynd Lind/Tígull.

Lokahóf knattspyrndeildarinnar fór fram sl. laugardag í Akóges, þar var mikið um dýrðir og einstaklega góð stemmning þar sem flokkarnir komu með skemmtiatriði og Einsi Kaldi sá um matinn. Að öðrum ólöstuðum þá átti Elías Árni Jónsson styrktarþjálfari atriði kvöldsins þar sem hann sýndi frábæra takta á gítarnum og tók lagið ásamt leikmönnum meistaraflokks karla.

Stelpurnar kláruðu sína leiki 7. september og enduðu í 6. sæti Lengjudeildarinnar, hópurinn er ungur og efnilegur og verður gaman að fylgjast með þeim á næstu árum. Strákarnir kláruðu sína leiki viku seinna, 14. september, þar sem þeir tryggðu sér efsta sætið í Lengjudeildinni og í leiðinni sæti í Bestu deildinni að ári, frábær árangur og verður gaman að fylgjast með þeim meðal þeirra bestu næsta sumar.

Annar flokkur kvenna var í samstarfi með Grindavík í sumar og sendum við inn sameiginlegt lið í Íslandsmótið, þær eru búnar að standa sig mjög vel og munu spila í undanúrslitum B-deildar á laugardag kl. 13.00 á Hásteinsvelli um það að komast upp í A-deildina, ef þær vinna þann leik  er úrslitaleikur á sunnudag.

Þrír leikmenn voru heiðraðir, en þær hafa allar tekið ákvörðun um að leggja skóna á hilluna, þær Júlíana Sveinsdóttir, Kristín Erna Sigurlásdóttir og Sigríður Lára Garðarsdóttir, og svo voru eftirtaldar viðurkenningar veittar til efstu flokka félagsins.

 

 

Meistaraflokkur kvenna:

Besti leikmaðurinn: Natalie Viggiano.

ÍBV-ari: Selma Björt Sigursveinsdóttir.

Markahæsti leikmaðurinn: Olga Sevcova.

Efnilegasti leikmaðurinn: Helena Hekla Hlynsdóttir.

 

Meistaraflokkur karla:

Besti leikmaðurinn: Vicente Valor.

ÍBV-ari: Tómas Bent Magnússon.

Markahæsti leikmaðurinn: Oliver Heiðarsson.

Efnilegasti leikmaðurinn: Viggó Valgeirsson.

 

2. flokkur kvenna:

Besti leikmaðurinn: Embla Harðardóttir.

ÍBV-ari: Bertha Sigursteinsdóttir.

Af fréttasíðu ÍBV.

Nýjustu fréttir

Veit Inga hvað hún syngur?
Norðurinngangur við sjúkrahúsið opinn á ný
Viðhorf til bæjarstjóra í brennidepli í nýrri könnun
Vinnustofur í stað líkamsræktar?
Glacier Guys með nýtt föstudagslag
„Úttroðinn af loðnu”
Fréttapýramídar afhentir fyrir nýliðið ár
Karlar hvattir til að sýna handverk
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.