Verðlag á matvöru hækkar á ný
Sjalfsafgreidsla Kronan
Þetta er fyrsti mánuðurinn frá því í mars þar sem verðlagseftirlitið mælir ekki lækkun verðlags í neinni verslun milli mánaða. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Eftir tveggja mánaða lækkun á verðlagi matvöru hækkar það nú með nokkrum rykk. Hækkunin milli mánaðanna september og október nemur einni prósentu, að mestu leyti vegna hækkunar á kjötvöru. Þótt aðrir flokkar hækki meira – súkkulaði hækkar til að mynda enn, mest hjá Nóa Síríus – þá vegur kjötið þyngra í neyslu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá verðlagseftirliti ASÍ.

Þetta er fyrsti mánuðurinn frá því í mars þar sem verðlagseftirlitið mælir ekki lækkun verðlags í neinni verslun milli mánaða.

Goði og SS hækka verð

Líkt og verðlagseftirlitið greindi frá nýverið hækkaði verð á vörum SS víða fyrir tveimur vikum. Vörur frá Goða hafa einnig hækkað, en lítilla breytinga verður vart á verði Ali og Stjörnugríss, þar sem verð lækka meira að segja í Nettó.


Súkkulaðiverð hefur hækkað mikið á árinu og heldur hækkunin áfram þennan mánuðinn hjá Nóa Síríus og Freyju. Langmesta hækkunin er á vörum frá Nóa Síríus í Bónus. Í Nettó lækkar meðalverðið á vörum allra framleiðenda nema Nóa Síríus.

Samkaup skipta liði

Verslanir Samkaupa – Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin og Iceland – hafa verið á miklu ferðalagi í verðlagningu síðan í sumar. Verð þar hækkaði verulega í júlí og lækkaði svo um munaði í ágúst, sem átti nokkurn þátt í sveiflum verðlagsvísitölu matvöru þá mánuði.


Nettó-breytingin, ef svo má segja, er að röðun verslana á matvörumarkaði er nú önnur en áður. Nettó, sem áður var tíðum um 12% yfir lægsta verði, eða 11% hærra en Bónus, er nú 6,4% yfir lægsta verði að meðaltali – aðeins um 3% yfir Bónus. Fjarðarkaup, sem áður voru rétt undir Nettó, eru nú 14,7% yfir lægsta verði að meðaltali.
Kjörbúðin hefur einnig færst til og er nú að jafnaði ódýrari en Extra, öfugt við það sem áður var. Hins vegar hafa Iceland og Krambúðin tekið kipp og eru nú sjónarmun lengra frá lægsta verði en þær voru fyrir verðhækkanir og -lækkanir í sumar.

Prís enn ódýrast

Prís er enn ódýrasta matvöruverslunin sem verðlagseftirlitið skoðar reglulega, en verð þar er að meðaltali 0,8% hærra en þar sem það er lægst. Bónus er nú að meðaltali 3,42% yfir lægsta verði og Krónan 4,30%.

Nýmjólk afar ódýr í Costco

Í óreglulegri skoðun á verðlagi í Costco um helgina kom í ljós að MS nýmjólk fékkst þar á 149 krónur fyrir lítra. Verð mjólkurinnar í Prís er 197 krónur og í Bónus 209 krónur. Nýmjólk kostaði síðast undir 150 krónum í Bónus haustið 2018, eða fyrir sex árum. Í sumar kostaði nýmjólk í Costco 199 krónur. Fleiri vörur sem skoðaðar voru:
D-vítamínbætt nýmjólk :179 krónur í Costco, 253 í Bónus og 254 í Nettó og Krónunni.
Bonaqua, epla, 10 í kassa: 849 í Costco, 929 í Bónus, 930 í Krónunni.
Arna léttmjólk: 279 í Costco, 331 í Bónus, 332 í Nettó og Krónunni.
Smjörvi: 649 krónur í Costco, 729 í Bónus, 739 í Nettó og Krónunni.

Nettó oft jafn dýrt og Krónan

Sjá má að Nettó er hér komið á sama verð og Krónan. Þetta gildir ekki aðeins um þessa handfylli af vörum. Þegar 1363 vörur voru skoðaðar sem finna má í bæði Nettó og Krónunni voru 939, eða 69%, á sama verði.
Þegar skoðaðar eru vörur sem fundust í Nettó, Bónus og Krónunni er gamalt mynstur sjáanlegt: Krónan er einni krónu dýrari en Bónus í 556 tilfellum af 617, eða í 90% tilfella. Nýlundan er að Nettó er nú líka einni krónu dýrari en Bónus í 72% tilfella. Nettó og Krónan voru á sama verði í 79% tilfella í þessum síðari samanburði.

Aðferðafræði
Verðlagsbreytingar eru reiknaðar með vigtun vöruflokka og verslana. Þegar talað er um breytingu á verðlagi er um að ræða veginn útreikning, en breyting á verði merkir stakan samanburð eða óvegið meðaltal.

Nýjustu fréttir

Þetta er mjög einfalt og enginn ómöguleiki
 Ég skal syngja fyrir þig í Salnum
Hinrik Hugi framlengir við ÍBV
Díana Dögg öflug í sigri Blomberg-Lippe
Snjóþungt í Eyjum
Skvísudagur á Bókasafninu um helgina
Fleiri erlendir starfsmenn læra íslensku í Eyjum
Taktu þátt í að móta menningarstefnu Vestmannaeyja

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.