Pílufélag Vestmannaeyja hlaut samfélagsstyrk Krónunnar
Samfelagsstyrkur 2024 Eyjar
Þórarinn Steinsson, formaður Pílufélags Vestmannaeyja tók við styrkveitingunni í verslun Krónunnar í Eyjum. Með honum eru Daníel Viðar Guðmundsson verslunarstjóri og Heiðdís Inga Hilmarsdóttir, verkefnastjóri sjálfbærnimála hjá Krónunni.

Krónan gekk nýlega frá vali á þrettán samfélagsverkefnum víða um land sem Krónan styrkir á þessu ári til góðra verka. Meðal þeirra sem hlutu styrk er Pílufélag Vestmannaeyja til að styrkja og efla starf yngri flokka í félaginu.

Pílufélag Vestmannaeyja er áfengis- og vímuefnalaust félag sem leggur mikla áherslu á að bjóða börnum, ungmennum og fullorðnum í Eyjum upp á sem besta aðstöðu til iðkunar pílukasts ásamt því að gefa yngri iðkendum kost á því að keppa við jafningja sína annars staðar á landinu, hvort sem í gegnum fjarfundarbúnað eða með því að standa fyrir ferðalagi á keppnismót í öðrum landshlutum.

Samfélagsstyrkir Krónunnar 2024

Krónan valdi nýlega þrettán verkefni víða um land sem hljóta samfélagsstyrk Krónunnar í ár en á hverju hausti eru valin verkefni úr fjölda umsókna, sem hljóta styrkinn. Langflest þeirra eru staðsett utan höfuðborgarsvæðisins, en eiga það öll sameiginlegt að stuðla að jákvæðum áhrifum á uppbyggingu í nærsamfélögunum á þeim þéttbýlisstöðum þar sem Krónan er til staðar. Verkefnin eiga það einnig sameiginlegt að ýta undir umhverfisvitund eða aukna lýðheilsu í formi áherslu á hollustu og/eða hreyfingu þar sem sjónum er einkum beint að ungu kynslóðinni, segir í tilkynningu frá Krónunni.

 

Nýjustu fréttir

Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Landsréttur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald
Framkvæmdir í ferbrúar-blíðunni
„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.