Safnahelgi – Menningarveisla þessa og næstu helgi
Það var árið 2004 sem Kristín Jóhannsdóttir, þá menningar- og ferðamálafulltrúi Vestmannaeyja blés til fyrstu Safnanæturinnar í Vestmannaeyjum. Hugmynd sem hún tók með sér frá Þýskalandi og hefur verið árviss viðburður síðan. Sannkölluð menningarveisla fyrstu helgina í nóvember. Fljótlega varð þetta að Safnahelgi og nú dugar ekki minna en tvær helgar.
Hefst hún í dag og verður hátíðin sett kl. 18.00 við Stafkirkjuna.
Dagskráin í ár er unnin í samráði við 100 ára afmælisnefnd Vestmannaeyja og er því umfangsmeiri en verið hefur. Þessa helgi stendur hún fram á sunnudag. Um næstu helgi er byrjað á föstudaginn 15. nóvember og síðasti dagskrárliðurinn er sunnudaginn 17. nóvember.
Eins og áður er Safnahelgin mikil menningarveisla í tónum, tali og myndlist og fróðlegum erindum. Fólk er hvatt til að kynna sér dagskrána sem er að finna á öllum vefmiðlum í Vestmannaeyjum og heimasíðum Vestmannaeyjabæjar og Safnahúss.
Segja má að Menningar- og listvinafélagið þjófstarti með opnun á sýningu í Einarsstofu í Safnahúsi kl. 17:00 í dag. Er þetta samsýning í anda Júlíönu Sveinsdóttur sem var ein merkasta listakona Vestmannaeyja og landsins alls á fyrri hluta 20. aldar. Félagið verður með opið hús að Strandvegi 50 (Hvíta húsinu) helgina 9.-10. nóv. kl. 16:00 til 18:00.
Sjálf setningin verður að venju við Stafkirkjun þar sem séra Viðar Stefánsson verður með hugvekju og Guðný Tórshamar syngur nokkur lög við eigin undirleik.
Hátíðin heldur áfram á morgun, föstudag og sunnudag og líka um aðra helgi þar sem marg forvitnillegt verður í boði.
Fleiri viðburðir eru framundan í mánuðinu á vegum afmælisnefndar. Sunnudaginn 24. nóvember kl. 13:00 verður í Landakirkju sameiginleg messa allra söfnuða í Vestmannaeyjum. Á eftir er kaffisamsæti í Safnaðarheimili. Landsþekktir söngvarar syngja í messunni og í kaffisamsætinu.
Seinna sama dag verður söngskemmtun og kaffisamsæti að Hraunbúðum í boði Vestmannaeyjabæjar.
Sunnudagur 1. desember kl. 20:00 í Eldheimum halda Katrín Halldóra og Pálmi Sigurhjartarson tónleika þar sem lög sem Ellý Vilhjálms gerði fræg á síðust öld verða á dagskránni og fleiri lög.
Opnunartími safnanna um Safnahelgi: Sagnheimar, byggðasafn: Opið laugardaga og sunnudaga kl. 13-16. Ókeypis aðgangur. Eldheimar: Opið alla daga kl. 11-17. Sea Life Trust: Opið alla daga kl. 13-16.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.