Breytt áætlun vegna þrettándagleði - uppfært
IMG_5740-001
Herjólfur í Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Tekin hefur verið sú ákvörðun að breyta siglingaáætlun Herjólfs seinnipartinn á morgun, föstudag með það í huga að þeir sem vilja njóta þrettándagleðinnar í Vestmannaeyjum hafi tök á því, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.

Herjólfur siglir því á morgun samkvæmt eftirfarandi áætlun:
Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00, 09:30, 16:00(Áður ferð kl. 17:00) og 22:00 (Sameinuð ferð 19:30 og 22:00).
Brottför frá Landeyjahöfn kl. 08:15, 10:45, 17:00 (Áður ferð kl. 18:15) og 23:15 (Sameinuð ferð 20:45 og 23:15).

Hvað varðar siglingar fyrir laugardaginn 4.janúar, verður gefin út tilkynning í síðasta lagi fyrir kl. 06:00 á laugardagsmorgun. Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni, segir í tilkynningunni.

Uppfært kl. 13.12:

Herjólfur siglir til Landeyjahafnar skv. eftirfarandi áætlun.

Föstudagur 3.janúar 2025
Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00, 09:30, 16:00, 22:00
Brottför frá Landeyjahöfn kl. 08.15, 10:45, 17:00, 23:15

Laugardagur 4.janúar 2025
Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00, 09:30, 12:00, 17:00, 19:30, 22:00
Brottför frá Landeyjahöfn kl. 08:15, 10:45, 13:15, 18:15, 20:45, 23:15
*Ferðir kl. 14:30 og 15:45 falla niður og þurfa farþegar að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til þess að færa bókun sína.

Sunnudagur 5.janúar 2025
Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00, 09:30, 12:00, 19:30, 22:00
Brottför frá Landeyjahöfn kl. 08:15, 10:45, 13:15, 20:45, 23:15.

*Ferðir kl. 14:30,15:45, 17:00 og 18:15 falla niður og þurfa farþegar að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til þess að færa bókun sína.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.