Strákarnir töpuðu - jafntefli hjá stelpunum
Stelpurnar fengu sitt fyrsta stig í ár í gær. Ljósmynd/Sigfús G. Guðmundsson

Bæði kvenna- og karlalið ÍBV léku deildarleiki í gær. Það var sannkallaður botnslagur á Seltjarnarnesi þegar Grótta tók á móti ÍBV í Olísdeild kvenna. Grótta neðstar og ÍBV í næsta sæti fyrir ofan. Enduðu leikar 22-22.

Hjá ÍBV voru þær Birna Berg Haraldsdóttir og Sunna Jónsdóttir atkvæðamestar með sitthvor sex mörkin, þá gerði Alexandra Ósk Viktorsdóttir fimm mörk. Grótta jafnaði þegar rúmlega ein mínúta lifði leiks og þrátt fyrir tækifæri beggja liða á lokamínútunni tókst hvorugu liðinu að skora. ÍBV er því enn í umspilssætinu og Grótta í fallsætinu.

Í Olísdeild karla mættust Haukar og ÍBV. Eyjaliðið lenti undir snemma leiks og voru undir 18-13 í leikhléi. Þeir náðu að saxa á forskotið þegar leið á seinni hálfleikinn og fengu nokkur tækifæri til að jafna leikinn, en allt kom fyrir ekki og dró aftur í sundur með liðunum í lokin. Lokatölur 28-24. Sigtryggur Daði Rúnarsson dró vagninn í markaskorun fyrir Eyjaliðið. Hann gerði 10 mörk. Þá varði Petar Jokanovic tólf skot í markinu hjá ÍBV.

Nýjustu fréttir

Sigurjón bjargaði fjórum áhöfnum
Leik ÍBV og FH í Bestu deildinni flýtt
Matthías Harðarson með tónleika í Hallgrímskirkju
Tæplega níræður Eyjamaður með 13 rétta
Samið við Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar
Gul viðvörun: Suðaustan hríð
Drífum í þessu svo við þurfum ekki að borga!
Stór viðbygging við Íþróttamiðstöðina í útboð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.