Fá aðeins rúmlega helming loðnukvótans
heimaey_lodnunot__holmg
Heimaey VE tekur þátt í loðnumælingum. Ljósmynd/Hólmgeir Austfjörð.

Í dag var greint frá því að Hafrannsóknastofnun ráðleggi veiðar á 8589 tonnum af loðnu. 200 mílur, sjávarútvegsvefur mbl.is greinir frá því að einungis verði 4.683 tonna loðnu­kvóta ráðstafað til ís­lenskra skipa af þessum 8589 tonnum sem lögð voru til af Hafró, eða rúm 54%.

Vísar miðillinn til til­kynn­ingar á vef Stjórn­artíðinda. Þá segir að áður en til út­hlut­un­ar komi verða 248 tonn dreg­in frá og falla í hlut rík­is­ins sem byggða- og at­vinnu­kvóti, en þess­ar veiðiheim­ild­ir verða lík­lega í boði fyr­ir ís­lensk skip á skipta­markaði. Ætla má að þau 3.906 tonn sem útaf standa miðað við ráðgjöf Haf­rann­sókna­stofn­un­ar renni til er­lendra skipa í sam­ræmi við fisk­veiðisamn­inga Íslands við Græn­land, Fær­eyj­ar og Nor­eg.

Þá er haft eftir Sig­ur­geiri Brynj­ari Krist­geirs­syni fram­kvæmda­stjóra Vinnslu­stöðvar­inn­ar á sama miðli að full­trú­ar loðnu­út­gerða hafi fundað í dag og hef­ur verið til umræðu að efna til frek­ari loðnu­leit­ar. Stutt er til stefnu því langt er gengið á vertíðar­tíma­bilið. „Loðnan er kom­in að Reykja­nesi og eft­ir ekki marga daga er hún kom­in í hrogn. Við ætl­um að funda aft­ur í fyrra­málið,“ seg­ir Binni.

Nýjustu fréttir

Er betra að vita en halda?
ÍBV sækir Breiðablik heim í kvöld
Reyktur lax frá Laxey til styrktar ÍBV handbolta
Sunnudagsmorgunn með alþjóðlegum blæ
Um 8000 farþegar með tíu skemmtiferðaskipum
Tvö skemmtiferðaskip í blíðunni í Vestmannaeyjum
Fyrstu spár lofa góðu fyrir Þjóðhátíð
Skiptu 3.000 tonnum af makríl fyrir 1.400 tonn af þorski
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.